FÉLAGSDÓMUR Dómur 24 . nóvember 202 6 . Mál nr. 6 /20 26: Alþýðusamband Íslands f.h. Starfsgreinasambands Íslands vegna Verkalýðsfélagsins Hlífar ( Leifur V. Gunnarsson lögmaður ) gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna Hafnarfjarðarkaupstaðar ( Jóhannes Tómasson lögmaður) Lykilorð Kjarasamningur. Yfirvinna. Útdráttur Ágreiningur aðila laut einkum að því hvort fyrirkomulag Hafnarfjarðarkaupstaðar á vinnutíma félagsmanna Verkalýðsfélagsins Hlífar á leikskólum bæjarins, sem fól í sér 37 stunda vikulega vinnuskyldu með uppsöfnun einnar stundar á viku í svokallaðan frítöku banka nema starfsmenn mótmæltu því sérstaklega, teldist heimil tilfærsla á vinnuskyldu samkvæmt kjarasamningi aðila eða hvort vinna umfram 36 virkar vinnustundir á viku teldist yfirvinna sem greiða bæri yfirvinnukaup fyrir. Félagsdómur komst að þeirri nið urstöðu að skilyrðum kjarasamningsins um tilflutning vinnutíma vegna takmarkaðrar starfsemi hluta úr ári væri ekki fullnægt gagnvart leikskólum stefnda , auk þess sem ekki hefði verið sýnt fram á að samið hefði verið við starfsfólk um tilflutning vinnuskyld u milli vikna eða árstíða, enda byggðist fyrirkomulagið á einhliða tilkynningum og neikvæðu samþykki og óljóst af hvaða tímabili vinnuskylda var flutt. Var því fallist á viðurkenningarkröfur stefnanda um að vinna félagsmanna stefnanda á leikskólum hjá stef nda umfram 36 virkar vinnustundir á viku teldist yfirvinna og að stefnda bæri að greiða yfirvinnukaup fyrir hana. Dómur Félagsdóms Mál þetta var dómtekið 27. október 2026. Málið dæma Ásmundur Helgason , Björn L. Bergsson, Hólmfríður Grímsdóttir, Karl Ó. Karlsson og Stefán Ólafsson. Stefnandi e r Alþýðusamband Íslands , fyrir hönd Starfsgreinasambands Íslands, bæði með aðsetur í Guðrúnartúni 1 í Reykjavík , vegna Verkalýðsfélagsins Hlífar, Reykjavíkurvegi 64 í Hafnarfirði . Stefndi er S amband íslenskr a sveitarfélaga , Borgartúni 30 í Reykjavík , vegna Hafnarfjarðarkaupstaðar, Strandgötu 6 í Hafnarfirði . 2 Dómkröfur stefnanda 1 Stefnandi krefst þess að viðurkennt verði með dómi að vinna félagsmanna stefnanda, sem starfa á leikskólum hjá stefnda, umfram 36 virkar vinnustundir á viku, sé yfirvinna í skilningi gr einar 2.3.1 í kjarasamningi milli SGS og SÍS. Stefnandi krefst þess enn fremur a ð viðurkennt verði með dómi að stefndi skuli greiða félagsmönnum stefnanda sem starfa á leikskólum hjá stefnda yfirvinnut axta s amkvæmt gr ein 1.5.1 í kjarasamningi milli SGS og SÍS fyrir vinnu umfram 36 virkar vinnustundir á viku. Að lokum krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda. Dómkröfur stefnda 2 Stefndi krefst sýknu og málskostnaðar úr hendi stefnanda að mati dómsins. Málavextir 3 M illi stefnanda , Verkalýðsfélagsins Hlífar, og stefnda , Hafnarfjarðarkaupstaðar , er í gildi kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga með gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 . Sá kjarasamn ingur tekur meðal annars til starfa félagsmanna stefnanda sem vinna á leikskólum hjá stefnda. 4 Í kafla 2.1 í kjarasamning num er fjallað almennt um vinnutíma. Þar er kveðið á um að 1. nóvember 2024 t ak i gildi breyting á grein 2.1.1 sem f elur í sér að vinnuvika starfsfólks breytist úr 40 vinnustundum í 36 virkar vinnustundir. Er ákvæðið núna svohljóðandi stundir. Heimilt er að semja við starfsfólk um tilflutning vinnuskyldu milli vikna eða árstíð 5 Í grein 2.1.1.1 er kveðið á um vinnutíma starfsmanna , - greininn i er heimilt að haga vinnutíma starfsmanna með þeim hætti að þeir vinni af sér, á starfstíma stofnunar, þá dag a se m starfsemi n er takmörkuð. Skuli það gert með því að dreifa þeim tíma sem starfsemin er takmörkuð liggur niðri sem jafnast á þá daga sem stofnunin starfar, nema að samkomulag sé um annað við einstaka starfsmenn. Nánar er vikið að framkvæmd dreifingar á v innuskyldu í næstu liðum greinarinnar . 6 Í kafla 2.3 í kjarasamningi aðila er fjallað um yfirvinnu. Samkvæmt grein 2.3.1 telst yfirvinna sú vinna sem fram fer utan tilskilins daglegs vinnutíma eða vaktar starfs - manns svo og vinna sem innt er af hendi umfram vikulega vinnutímaskyldu þótt á dagvinnutímabili sé. Í grein 2.3.7 kemur fram að öll yfirvinna skuli greidd eftir á fyrir hvern mánuð eða hverja þrjátíu daga og komi til útborgunar eigi síðar en 15 dögum eftir síðasta dag reikningstímabils. Í grein 2.3.10 er síðan mælt fyrir um heimild starfs - manns, með samkomulagi við vinnuveitanda, að safna allt að tíu frídögum á ári vegna yfirvinnu, þannig að yfirvinnutímar k omi skal greitt við næstu reglulegu útborgun. Í greininni er tekið fram að yfirvinnuálag nemi 44,44% af yfirvinnutímakaupi starfsmanns og að ó heimilt sé að taka það út í fríi . 3 7 Í kjarasamning i aðila er tók gildi 1. apríl 2024 var einnig mælt fyrir um að 1. nóvember 2024 yrðu ákveðnar breytingar á grei n 1.5.1 sem fjallar um greiðslu fyrir yfirvinnu. Samkvæmt greininni er yfirvinna greidd með tímakaupi , sem skiptist í yfirvinnu 1, sem er 0,9385% af mánaðarlaunum, og yfirvinnu 2, sem er 1,0385% af mánaðarlaunum. Þar er síðan nánar vikið að því hvenær grei ða skuli yfirvinnu 1 og hvenær yfirvinnu 2. 8 Í greinargerð stefndu er því haldið fram að í kjölfar þeirra breytinga sem urðu á grein 2.1.1 í kjarasamningnum 1. nóvember 2024 hafi félagsmenn stefnanda leitað eftir því að ófaglærðum starfsmönnum leikskóla ste fnda yrði gefinn kostur á tilflutningi vinnustunda þannig að þeir gætu safnað upp frídögum , sem hægt væri að nota á svokölluðum skráningardögum , þegar starfsemin væri takmörkuð. Hafi stefndi tekið það til athugunar og leitað meðal annars upplýsinga um hver nig þessu væri fyrir komið í öðrum sveitarfélögum. 9 Í málinu liggja fyrir tölvupóstsamskipti milli formanns stefnanda og mannauðsstjóra stefnda frá 23. til 29. janúar 2025 . Upphaflega lutu samskiptin að athugasemdum af hálfu stefnanda við orðalag tilkynningar, sem mun hafa verið sett upp á upplýsinga - töflu í leikskól a í bænum , en hún laut Benti formaður stefnanda á að ekki væri í kjarasamningnum lengur samið um styttingu vinnuviku , heldur væri vinnuvikan 36 klukkustundir. Vinna umfram það væri yfirvinna . Í svari mannauðsstjóra stefnda var tekið fram að eðlilegt væri að umræða skapaðist og vísaði þá t il greina 2.1.1 og 2.1.1.1 . Lýsti mannauðsstjórinn að verið væri að vinna í því að finna út hvað hentaði best fyrir starfsme í því efni . Í svarbréfi við þessu áréttaði formaður stefnanda að vinnuvikan væri 36 stundir samkvæmt kjarasamni ngi og stytting vinnuvikunnar heyrði sögunni til . Fram kom að grein 2.1.1 ætti ekki við um vinnu umfram 36 klukkustundir á viku , heldur g rein 2.3.10 . Mannauðsstjóri nn svaraði nokkrum dögum síðar og kvaðst hafa leitað álits Samband s íslenskra sveitarfélaga . Samkvæmt því væri vinnuskyldu [kall aði slík tilfærsla starfsmanna og bæjarins fyrirkomulag sem miðaði a ð því að allir skóla - og frístundaliðar ynnu 37 stunda vinnuviku og s öfnuðu upp einum tíma á viku sem þeir gætu notað til frítöku á á öðrum tíma ef hentaði. 10 Stefndi tilkynnti í febrúar 2025 um slí kt fyrirkomulag - að með nýjum kjarasamningi væri opnað á tilflutning vinnuskyldu milli vikna og árstíða. Hafi það verið rík krafa frá s tarfsfólki leikskóla sem væru í stefnanda að geta safnað upp tímum til að taka í frí á dögum sem væru vinsælir til frítöku. Síðan segir orðrétt: 4 Til að koma til móts við þessar óskir verður gerð sú breyting að frá og með 1. mars nk. verður vinnuskylda þess ara starfsmanna í fullu starfi 37 tímar á viku. Með þessu - kerfi ð okkar Vinnustund heldur utan um. Starfsfólk í hlutastarfi safnar upp í frítöku - bankann miðað við starfshlutfal Tilfærsla á vinnuskyldu í leikskólum gerð fyrir alla leikskóla - og frístundaliða. Ef starfsfólk vill ekki þetta nýja fyrirkomulag og ekki safna upp t ímum þarf að láta yfirmann vita sem upplýsir launadeild og viðkomandi verður áfram með 36 stunda vinnuviku. Gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið um tilflutning á vinnuskyldu gildi að lágmarki til árs í senn (almanaksárs) og haldist nema starfsmaður óski bre ytinga sem taka þá gildi um áramót. Ósk um breytingu þarf að senda til yfirmanns skriflega ekki seinna en 1. nóvember fyrir næstkomandi almanaksár. Horft er á almanaksárið í þessari uppsöfnun og þarf að taka uppsafnaðan tíma út innan almanaksársins. Nánar er vikið að þessu fyrirkomulagi í sex töluliðum í tilkynningunni. Þar kemur meðal annars fram að skammtímaveikindi hefðu ekki áhrif á söfnunina , en að ekki safnaðist í bankann í langtímaveikindum, fæðingarorlofi, í öðru orlofi eða launalausu leyfi. Þá sag ði þar að reynt væri eftir fremsta megni að koma til móts við óskir starfsmanna um frídaga, en mönnun leikskólans væri alltaf í forgangi. 11 Stefnandi sendi stefnda 1. mars 2025 tölvupóst sem hafði að geyma álit lögmanns Alþýðusambands Íslands á framangrein du fyrirkomulag i . Þar kom fram sú afstaða að ekki stæði heimild til tilfærslu vinnuskyldu líkt og stefndi hefði útfært. Ekki væri hægt að byggja á grein 2.1.1 í kjarasamningnum til stuðnings fyrirkomulaginu og grein 2.1.1.1 ætti eingöngu við um starfsemi þar sem starf lægi niðri hluta úr ári, svo sem í grunnskólum. Vinnust aðir gætu ekki eftir hentisemi valið að beita annað hvort grein 2.1.1 eða grein 2.3.10 sem fjall i um frí vegna yfirvinnu. Í tölvupóstinum er síðan fundið að ýmsu við framangreint fyrirkomula g. Þar segir meðal annars orðrétt: Það er á engan hátt afstaða Hlífar að mótmæla því eða koma í veg fyrir það að starfsfólk safni sér upp stundum til frítöku á eftirsóttum tímabilum, síður en svo. En þegar farið er af stað í slíka vegferð þarf að gæta að r étti fólks . Fyrir það fyrsta er með öllu óheimilt að setja á slíkt form sem lagt er upp með, þ.e. að fólk i sé ekki gefinn valkostur, veitt gegnsæi við ákvörðunartöku og frestir virtir. Ekki er heimilt að notast við neikvætt samþykki aðila, eða það að fólki sé tilkynnt um svo umfangsmiklar breytingar sem hér eru uppi og það þurfi sjálft að mótmæla þeim breytingum vilji það ekki una þeim. Öfugt skal farið að og gert skal jákvætt samþykki fyrir breyttum vinnutíma. 12 Erindi stefnanda var svarað með bréfi stefnda 31. mars 2025 . Þar segir orðrétt: Það er rétt að meginreglan um breytingar á vinnutíma er að starfsfólk eigi að samþykkja breytinguna en í þessu máli er staðan önnur þar sem mjög rík krafa er frá flest öllu 5 starfsfólki í Hlíf, sem starfa í leikskólum, að geta safnað upp tímum til þess að geta tekið um t.d. jól, páska eða á öðrum tyllidögum. Því var litið svo á að þessi leið væri ákjósanlegri í þetta skiptið og bjóða þeim sem ekki kjósa að safna upp frítöku að láta yfirmann vita af því og þeir starfsmenn ha lda áfram eðlilegri vinnuskyldu, þ.e.a.s. 7,2 klukkustundir á dag eða 36 tíma á viku allt árið um kring. Þess ber að geta að enginn starfsmaður er skyldaður í frítöku, það er allt gert með samþykki starfsfólks. Ef Hlíf er ekki sátt við þetta fyrirkomul ag er það hins vegar ekkert mál að afturkalla þessa breytingu sé hún í óþökk ykkar þrátt fyrir ákall starfsmanna verkalýðsfélagsins. Vinnufyrirkomulag starfsfólks yrði þá aftur sú sama 7,2 tíma á dag eða 36 tíma á viku, allt árið um kring. 13 Stefnandi svarað i erindinu 21. október 2025. Kom þar meðal annars fram að samþykki þyrfti fyrir tilflutning i á vinnuskyldu , auk þess sem ítrekað var að ekki væri ágreiningur um að starfsfólk safnaði sér upp tíma til frítöku. Hins vegar þyrfti að greiða því í samræmi við k jarasamning, sbr. g rein 2.3.10. Var þessi túlkun stefnanda síðan áréttuð í tölvupósti 23. október 2025 . 14 Stefndi sendi stefnanda álit Sambands íslenskra sveitarfélaga 3. nóvember 2026 . Í álitinu kemur meðal annars fram að sambandið væri ósammála túlkun stef nanda , ekki væri nauðsynlegt að greiða álag eins og stefnandi héldi fram. 15 Í málinu liggur fyrir tilkynning stefnda frá nóvember 2025 um endurskoðað fyrir - komulag við tilflutning vinnuskyldu starfsmanna stefnanda sem starfa á leikskólum bæjarins. Er fyrirk omulagið að mestu eins og lýst hafði verið í febrúar 2025, en var með tilkynningunni framlengt frá og með 1. mars 2026. 16 Við aðalmeðferð málsins gaf varaformaður stefnanda, Gundega Jaunlinina, skýrslu. Málsástæður og lagarök stefnanda 17 Stefnandi kveðst byggja málatilbúnaðinn sinn á ákvæðum kjarasamnings sem gildi milli stefnanda og stefnda. Grundvall ist kröfur stefnanda einkum á því að vinna leik - skóla starfsmanna hjá stefnda umfram fulla vinnuskyldu, sem séu 36 virkar vinnu - stundir í viku, sbr. g rein 2.1.1, sé yfirvinna í skilningi kjarasamningsins, sbr. gr ein 2.3.1, og að fyrir þá vinnu skuli greiða yfirvinnutaxta, sbr. g rein 1.5.1. Stefnandi byggi á meginreglu samninga - og kröfuréttar um skuldbindingargildi gerðra samninga, sem og meginreglum vi nnuréttar og opinbers starfsmannaréttar, þ ar með talið að stefnda sé óheimilt að viðhafa vinnufyrirkomulag sem samræmist ekki ákvæðum kjara - samnings og að fyrir vinnu umfram full vinnuskil skuli greiða yfirvinnu. 18 Stefnandi grundvallar dómkröfu sína á því að ákvæði kjarasamnings mæl i fyrir um greiðslu yfirvinnukaups þegar dagvinnutíma sé lokið. Kveðið sé á um í gr ein 2.3.1 að yfirvinna teljist meðal annars vinna sem innt sé af hendi umfram vikulega vinnu - tímaskyldu þótt á dagvinnutímabili sé og gr ein 1.5.1 skýr i hvernig greiða skuli starfsmönnum vegna þeirrar yfirvinnu , eins og þar er nánar rakið . 6 19 Stefnandi vísar til þess að í gr ein 2.3.7 í kjarasamningnum segi að öll yfirvinna skuli greidd eftir á fyrir hvern mánuð eða hverja þrjátíu daga og komi til útborgunar eigi síðar en 15 dögum eftir síðasta dag reikningstímabils. Þó k omi fram í gr ein 2.3.10 að heimilt sé starfsmanni, með samkomulagi við vinnuveitand a, að safna allt að 10 frídögum á ári vegna yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar en yfirvinnuálagið skuli greitt við næstu reglulegu útborgun , eins og þar er nánar rakið . 20 Stefnandi kveð ur kröfu sína grundvallast á því að stefnda s é heimilt að skipuleggja vinnu á leikskólum þannig að starfsmenn vinni 37 tíma í viku, þ að er einum tíma umfram kjarasamningsbundna vikulega vinnuskyldu, í samræmi við gr ein 11.1.5.1 í kjarasamningi. Hins vegar sk uli stefndi greiða starfsmönnum yfirvinnuna í lok þess mánaðar sem hún er unnin í samræmi við gr ein 2.3.7 , sé ekki til staðar samkomulag á milli starfsmanns og vinnuveitanda um að starfsmaður safni allt að 10 frídögum á ári vegna yfirvinnu , en fái yfirvinnuálagið greitt við næstu útborgun, sbr. gr e in 2.3.10. Stefnandi árét ti að þessi ákvæði haf i ekki að geyma undantekningar sem vík i frá þeirri meginreglu að greiða skuli yfirvinnu eftir að fullum vinnuskilum sé náð. 21 Stefnandi kveðst einnig byggja á því að ákvæði gr einar 2.1.1 í kjarasamningi um tilflutning vinnuskyldu eigi ekki við um starfsfólk leikskóla hjá stefnda, eins og stefndi haldi fram. Um sé að ræða undantekningu frá meginreglu kjarasamnings um skipulag vinnutíma og því skuli ekki túlka ákvæðið víðtækar en efti r orðanna hljóðan. Stefnandi tel ji að ákvæðið gildi eingöngu um tilflutning vinnuskyldu við sérstakar aðstæður, svo sem við vaktavinnu þar sem vinna get i orðið breytileg milli vikna eftir vaktakerfum svo og hjá þeim sem sinn i árstíðarbundinni vinnu þar sem álag sé aukið yfir eina árstíð á móti minna álagi á öðrum árstíðum. Um það snúist tilvitnunin í hefði að mati stefnanda verið óþarft að marka ákvæðinu lokaða heimild innan þeirr a tveggja liða. 22 Það sé að auki skýrt s amkvæmt ákvæðinu að slíkur tilflutningur vinnutíma skuli byggja á samningum við starfsmenn, en slíkum samningum sé ekki til að dreifa milli félagsmanna stefnanda annars vegar og stefnda hins vegar. Þvert á móti hafi s tefndi hagað skipulagi á vinnutíma með þeim hætti sem lýst hafi verið og tekið ákvörðun um það einhliða. Þar að auki verð i að gera ráð fyrir að samningar um tilflutning vinnu - skyldu milli vikna eða árstíða tilgreini með skýrum hætti hvaða tímabil eigi undi r, það er á milli hvaða tímabila sé verið að flytja vinnuskyldu. Slík lýsing ligg i ekki fyrir. 23 Að mati stefnanda þurfi að liggja skýrt fyrir hvenær taka frídaga fari fram, enda heimil i ákvæði kjarasamnings ekki atvinnurekanda að ákveða einhliða að starfsmaður skuli taka sér ólaunaðan frídag á tilteknum degi. Í þessu samhengi sé bent á að kjara - samningur h afi að geyma ákvæði um þá daga sem séu skilgreindir sem frídagar, sbr. gr einar 2.1. 4.1 til 2.1.4.3, og þá meginreglu vinnuréttar að atvinnurekanda beri að greiða starfsmanni í samræmi við ráðningarsamningsbundið starfshlutfall hvort sem hann sé með verkefni fyrir þá eða ekki. 7 24 Loks sé það mat stefnanda að stefndi geti ekki byggt á heimil d í gr ein 2.1.1.1 enda sé hún sérstaklega afmörkuð við vinnustaði sem séu með takmarkaða starfsemi hluta út ári og í því sambandi beinlínis fjallað um grunnskóla þar sem starfsemi ligg i niðri hluta úr ári vegna ákvörðunar um skólaárið. Starfsemi leikskóla sé hins vegar ekki sambærileg starfsemi grunnskóla að þessu leyti. Leikskólar séu ekki árstíðabundnir á sama hátt og grunnskólar, enda að jafnaði opnir allan ársins hring, þó undantekningar geti verið á því vegna sumarorlofa starfsmanna og nemenda. Málsástæður og lagarök stefnda 25 Stefndi mótmælir öllum málsástæðum stefnanda og krefst sýknu. Hann tekur fram að þó að málið varði eingöngu réttarsamband leikskólastarfsmanna , sem eru í stéttarfélaginu Hlíf , og Hafnarfjarðarkaupstaðar, fyrirkomulag tilflutn ings á vinnu - skyldu þeirra á milli og hvort staðið hafi verið að slíku með réttum hætti, l úti viður - kenningarkrafa stefnanda að réttarsambandi stefnanda og stefnda almennt. Af því leiði að færi svo að fallist yrði á kröfur stefnanda, eins og þær séu settar fram, myndi það leiða til þess að öll vinna félagsmanna stefnanda, sem starf i á öllum leikskólum hjá sveitarfélögum innan aðildar stefnda, myndi teljast yfirvinna og að greiða skyldi þeim félagsmönnum yfirvinnu samkvæmt grein 1.5.1. Þótt stefndi mótmæli þ ví að fyrir - komulagið sem um sé deilt í máli þessu hafi verið óheimilt eða ólögmætt, ligg i ekkert fyrir um að þeir annmarkar eða ágallar , sem stefnandi byggi á að séu fyrir hendi í tilviki Hafnarfjarðarkaupstaðar og Hlífar, svo sem um skort á fullnægjandi samningi og þess háttar, eigi við um önnur sveitarfélög. Stefndi mótmæli þessari framsetningu á kröfugerð stefnanda sérstaklega , enda hvort tveggja vanreifað, þannig að kunni að varða frávísun málsins án kröfu, og ósannað að fyrirkomulag vinnuskyldu í öðru m sveitarfélögum sé með einhverjum hætti ólögmætt. 26 Kveðst stefndi byggja á því að t ilfærsla Hafnarfjarðarkaupstaðar sé í fullu samræmi við greinar 2.1.1 og 2.1.1.1 í kjarasamning i aðila og því ekki yfirvinna . Vísar ste fn di til þess að s tefnandi byggi á því að þótt heimilt sé að skipuleggja vinnu á leikskólum , þannig að starfsmenn vinni 37 tíma á viku, grundvallist slíkt á gr ein 11.1.5.1 í kjarasamning i aðila. Því beri stefnda að greiða starfsmönnum yfirvinnu í lok hvers mánaðar í samræmi við gr ein 2.3.7, enda sé ekki samkomulag til staðar á milli starfs - manns og vinnuveitanda um að hann safni allt að 10 frídögum á ári, sbr. gr ein 2.3.1. Þessu andmæli r stefndi. Yfirvinna tel jist sú vinna sem fram f ari utan tilskilins daglegs vinnutíma og s ú vinna sem innt sé af hendi umfram vikulega vinnutímaskyldu, sbr. gr. 2.3.1 kjarasamnings aðila. Fyrirkomulag Hafnarfjarðarkaupstaðar fel i ekki í sér vinnu umfram vikulega vinnutímaskyldu, heldur sé vikuleg vinnutímaskylda aukin um klukkustund, en vinnusk yldudagar séu að sama skapi færri en hjá starfsmanni sem vinn i 36 tíma á viku allt árið. 27 Þá byggi fyrirkomulag Hafnarfjarðarkaupstaðar á ákvæðum kjarasamnings stefnanda og stefnda um heimild vinnuveitanda, á þeim stöðum þar sem starfsemi er takmörkuð 8 hluta úr ári, til að haga vinnutíma starfsmanna með þeim hætti að starfsmenn vinni af sér á starfstíma stofnunar þá daga sem starfsemi er takmörkuð, sbr. gr ein 2.1.1.1. 28 Hvað sem framangreindu líð i árétt i stefndi að tilfærsla vinnuskyldu hjá leikskólum Haf narfjarðarkaupstaðar byggi einnig á samkomulagi bæjarfélagsins við leikskóla - starfsmenn í Hlíf og sé þannig hvort tveggja í samræmi við gr ein 2.1.1.1 og gr ein 2.1.1, þótt um aðskilin ákvæði sé að ræða. Því sé mótmælt að um einhliða fyrirkomulag hafi verið að ræða . Bendir stefndi í því sambandi á að fyrirkomulagið hafi verið innleitt vegna ákalls félagsmanna í stefnanda og vegna áhuga starfsfólks, að setja fyrirkomulagið fram sem meginreglu fremur en að óska eftir jákvæðu sam - þykki hvers og eins starfsmanns. Jafnframt árétt i stefndi að starfsmönnum sé ávallt frjálst að biðjast undan fyrirkomulaginu . Þ annig byggi tilfærsla vinnuskyldu á sam - þykki starfsmanns og sé í engum tilvikum bindandi fyrir þá. Þannig ligg i fyrir sam - komulag og samþykki samkvæmt gr ein um 2.1.1 og 2.1.1.1 og get i ekki haft úrslita - áhrif þótt ekki hafi verið gerður skriflegur samningur við hvern og einn starfsmann. 29 Í framangreindu samhengi áréttar stefndi að aldrei h afi komið krafa frá stefnanda um að vikulegir vinnutímar verði 36 tímar í s amræmi við grein 2.1.1, og væri ekki gerð krafa um það í máli þessu. Þá tekur stefndi fram að rík sátt sé um fyrirkomulagið og hafi stefnandi komið því ítrekað á framfæri í samskiptum aðila , að hann hafi ekki viljað víkja frá meginatriðum þess, þótt einsýn t sé að forsendur fyrir slíkri tilhögun myndu bresta ef fallist yrði á kröfur stefnanda. Því hvíli málatilbúnaður í reynd á þeirri forsendu að félagsmenn stefnanda hafi samþykkt tilfærsluna. 30 Stefndi hafn ar sömuleiðis þeim málatilbúnaði stefnanda að ákvæði gr eina 2.1.1 og 2.1.1.1 geti ekki átt við um leikskólastarfsmenn. Í fyrsta lagi mótmælir hann því að g rein 2.1.1 sé bund in við vaktavinnufólk og þau sem sinn i árstíðarbundinni vinnu. Af orðskýringu greinarinnar leiði að heimildin sé fjarri lagi bundin við vinnu af slíkum toga, heldur sé eingöngu vísað til þess að heimilt sé að semja um tilflutning takmarka þessa heimild til tilfærslu við vaktavinnufólk eða þ au sem sinn i árstíða - bundinni vinnu hefði slíkt komið skýrlega fram í ákvæðum kjarasamningsins, sem líkt og önnur ákvæði kjarasamninga sæti hefðbundinni orðskýringu. Séu enda fjölmörg dæmi þess í ákvæðum kjarasamningsins, meðal annars í grein 2.1.1.1, að t alið sé upp í dæmaskyni til hvers konar starfa eða starfstegunda vísað sé til. 31 Enn fremur fjall i gr ein 2.1.1 um almennan vinnutíma, en fjallað sé sérstaklega um vaktavinnu í gr ein 2.6, sem h afi meðal annars að geyma skýr ákvæði um skipulag vaktavinnumanna með vaktskrá, sbr. g rein 2.6.2. Te lji stefndi því augljóst að ákvæði gr einar 2.1.1, sem veiti meðal annars heimild til tilfærslu á vinnuskyldu, eigi ekki einungis við um þá sem vinni í vaktavinnu heldur einnig og öðru fremur þá sem starf i á hefðbundnu m dagvinnutíma. 9 32 Stefndi kveðst alfarið hafn a þ ví að fyrirkomulagið geti ekki byggst á grein 2.1.1.1, enda sé starfsemi leikskóla sannarlega takmörkuð hluta úr ári og þjónusta skert sem því nem i . Starfsemi leikskóla ligg i niðri yfir hásumar auk þess sem sta rfsemi sé takmörkuð á svokölluðum skráningardögum, sem séu þeir dagar þar sem ákjós - anlegast væri fyrir starfsmenn að eiga frí frá vinnu. Vísa r stefndi um þetta til leikskóladagatals Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrri umfjöllunar . Sömuleiðis vís i stefndi til þess að faglærðir leikskólakennarar tak i sem renni enn frekari stoðum undir að starfsemi sé takmörkuð á þeim dögum. Enn fremur hafn i stefndi því að ákvæðið nái einungis til grunnskóla, þótt þeir séu taldir u pp í dæmaskyni í greininni og ljóslega ekki í tæmandi talningu. Þar sem um sé að ræða almennt vinnutímaákvæði kjarasamnings blasi við að mati stefnda að kveða hefði þurft skýrlega á um slíka takmörkun í ákvæðinu, hafi vilji samningsaðila staðið til þess að takmarka ákvæðið við starfsemi grunnskóla. 33 Þá mótmæl i r stefndi því að ekki hafi verið tilgreint sérstaklega í fyrirkomulagi Hafnar - fjarðarkaupstaðar hvaða tímabil ætti undir; þvert á móti k omi fram að gert sé ráð fyrir því að fyrirkomulagið gildi að lágma rki til árs í senn og h aldist nema starfsmaður ósk i breytinga, sem þá t aki gildi næstu áramót. Hvað sem því líð i hafn i stefndi því að þörf hafi verið á slíkri tilgreiningu sérstaklega enda væri engin stoð fyrir slíkri ályktun. Sömuleiðis sé fyrirkomulagið skýrlega tilgreint í tilkynningu Hafnarfjarðar og sé því enginn vafi um hvernig tilflutningi sé háttað. 34 Að endingu árétt ar stefndi að starfsmenn fá i ávallt laun fyrir þá daga sem starfsmenn vinn i af sér samkvæmt fyrirkomulaginu, auk þess sem ekki væri um að ræða frídaga í skilningi gr eina 2.1.4.1 og 2.1.4.3, heldur tilfærslu á vinnuskyldu, líkt og áður segi, með færri vinnuskyldudögum yfir árið en ella. H afi ekki úrslitaáhrif þótt hugtakið afi það almennari og víðtækari skírskotun. Þá h afi fyrirkomulag tilfærslu á vinnuskyldu lengi tíðkast, s vo sem í kennarastéttum í grunn - og framhaldsskóla. Sé málsástæðum þar að lútandi í stefnu þannig andmælt , enda sé ekki um að ræða ákvörðun um að starfs maður taki ólaunaðan frídag. Sömuleiðis fel i st í stjórnunarrétti vinnuveitanda að honum sé heimil tilfærsla á vinnuskyldu í samræmi við þarfir starfsemi hlutaðeigandi vinnustaðar. Geri ákvæði gr einar 2.1.1.1 raunar beinlínis ráð fyrir því að slík heimild s é til staðar og sé það öðrum þræði tilgangur ákvæðisins að mæla fyrir um tilhögun vinnuskyldu við slíkar aðstæður. Með vísan til alls framangreinds verð i að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda. Niðurstaða 35 Af hálfu stefnanda er um lögsögu Félagsdóms í máli þessu vísað til 3. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. þeirra laga gilda þau um alla starfsmenn sem eru félagar í stéttarfélögum , sem samkvæmt 4. og 5. gr. laganna hafa rétt til að gera kjarasamninga samkvæmt þeim , og eru ráðnir hjá ríkinu, ríkisstofnunum, sveitarfélögum eða stofnunum þeirra með 10 föstum tíma - , viku - eða mánaðarlaunum, enda verði starf þeirra talið aðalstarf. Ákvæði l aganna taka aftur á móti ekki til nokkurra flokka starfsmanna sem tilgreindir eru í 2. mgr. 1. gr. laganna. Samkvæmt 3. tölulið þeirrar málsgreinar taka lögin til dæmis ekki til starfsmanna stofnana og fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga þegar kaup þeirra og kjör fara eftir kjarasamningum stéttarfélaga þeirra og vinnuveitenda, sbr. lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur . 36 Ekki liggur fyrir að Starfsgreinasamband Íslands , fyrir hönd stéttarfélaga sem eiga aðild að sambandinu, þeirra á meðal Verkalýðsfé lagsins Hlífar, hafi heimild til að gera kjarasamning samkvæmt 4. eða 5. gr. laga nr. 94/1986. Slíka heimild til að gera kjarasamning við atvinnurekendur fyrir hönd félagsmanna aðildarfélaganna hefur Starfsgreinasamband Íslands aftur á móti á grundvelli al mennrar reglu 5. gr. laga nr. 80/1938. Verður samkvæmt því að líta svo á að um lögsögu Félagsdóms í málinu fari eftir 44. gr. þeirra laga. 37 Mál þetta lýtu r að ágreining i milli stefnanda og stefnda um skilning á kjarasamning i sem gildir milli þeirra . Það hey rir því undir Félagsdóm að dæma í málinu samkvæmt 2. tölulið 1. mgr. 44. gr. laga nr. 80/1938. 38 Í málinu krefst stefnandi viðurkenningar á því að vinna leikskólastar fsfólks , sem starfa r hjá stefnda og eru félagsmenn í stefnanda, umfram 36 virkar vinnustundir, teljist yfirvinna í skilningi greinar 2.3.1 í kjarasamningi aðila. Jafnframt að greiða skuli þeim yfirvinnukaup samkvæmt grein 1.5.1 fyrir vinnu umfram 36 virkar vinnustundir á viku. 39 Dómurinn lítur svo á að k röfugerð stefnan da sé aðallega reist á því , að samkvæmt tilgreindum ákvæðum kjarasamnin gsins skuli vinna umfram 36 virkar vinnustundir ávallt teljast yfirvinna , sem greiða eigi fyrir með yfirvinnukaup i eða eftir atvikum frítöku samkvæmt grein 2.3.10 , ásamt yfirvinnuálagi er nemi 44,44% af yfirvinnu - tímakaupi. Ber að skilja málatilbúnað stefnanda að þessu leyti á þann veg að framangreint eigi við óháð því hvort samningur hafi verið ger ður um tilflutning vinnuskyldu milli vikna eða árstíða samkvæmt grein 2.1.1 í kjarasamnin gnum. Að því frágengnu leggur dómurinn til grundvallar að stefnandi líti svo á að fallast beri á viðurkenningarkröfur hans um þau starfskjör leikskóla starfsfólks sem þar er lýst , enda hafi stefndi ekki gert samning um tilflutning vinnuskyldu við starfsfólk hjá stefnda samkvæmt grein 2.1.1 , auk þess sem grein 2.1.1.1 eigi ekki við . 40 Með stefnda í kröfugerð stefnanda er ljóslega átt við sveitarfélagið Hafnarfjarða r - kaupstað . Þá verður að leggja til grundvallar að með stefnanda sé átt við Verka - lýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði. Dómur um kröfuna bindur einungis þá aðila, sbr. til hliðsjónar 1. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, þótt annars vegar Alþýðusamband Íslands fyrir hönd Starfsgreinasambands Íslands og hins vegar Samband ísl enskra sveitarf élaga reki málið fyrir þeirra hönd á grundvelli 45. gr. laga nr. 80/1938. Kröfugerðin er nægilega skýr og fullnægir málatilbúnaður stefnanda 11 þeim kröfum sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 69. gr. laga nr. 80/1938. Verður málinu þ ví ekki vísað frá dómi án kröfu , eins og stefndi telur rétt að gera. 41 Í grein 2.1.1 er afdráttarlaust kveðið á um að vinnuvika starfsfólks í fullu starfi sé 36 virkar vinnustundir, en að heimilt sé að semja við starfsfólk um tilflutning vinnuskyldu milli vi kna eða árstíða. Tekur greinin samkvæmt efni sínu almennt til starfsfólks og standa engin rök til þess að álykta að hún eigi ekki við um starfsfólk leikskóla, eins og stefnandi hefur vísað til. 42 Ekki eru frekari fyrirmæli í kjarasamning num sem varpa skýru ljósi á hvað átt er við milli vikna eða árstíða eða hvernig beri að standa að gerð samnings um þ að atriði . Í grein 2.1.1.1, sem er undirgrein 2.1.1, er aftur á móti kveðið á um heimild til að haga vinnutíma starfs fólks , þar s em starfsemi er takmörkuð hluta úr ári, svo sem í grunnskóla, þannig að starfsfólk vinni af sér á starfstíma stofnunar, þá daga sem starfsemi er takmörkuð. Eins og áður er lýst í 5. efnisgrein skal það gert með því að dreifa þeim tíma sem starfsemi er tak mörkuð liggur niðri sem jafnast á þá daga sem stofnunin starfar , nema samkomulag sé gert um annað við einstaka starfsmenn . Ágreiningslaust er að þegar vinnutíma er hagað með þeim hætti sem lýst er grein 2.1.1.1 er ekki litið á þær vinnustundir, þar sem starfsfólk vinnur af sér tíma á starfstíma stofnunar, sem yfirvinnu. 43 Þegar litið er til efnis beggja greinanna , greina 2.1.1 og 2.1.1.1, verður að skýra þá fyrri þannig að semja megi við starfsfólk um að vinnuskylda á tilgreindum tíma sé færð á aðrar v ikur eða árstíðir . Er þá dregið úr skyldunni í viku eða árstíð sem hún er færð af, en hún aukin í sama mæli í viku , vikum eða á árstíð sem hún er færð til . S líkur samningur verður þó að samrýmast fyrirmælum greinarinnar um að vinnuvikan sé í grunninn 36 virkar vinnustundir , e lla er samningurinn ógildur að því leyti sem hann fer í bága við kjarasamninginn, sbr. 7. gr. laga nr. 80/1936 . Sé þessa gætt og samningnum fylgt er ekki unnt að líta svo á að vinna umfram 36 virkar vinnustundir, á þeim dögum sem vinn uskyldan hefur verið færð til, sé yfirvinna sem greiða ber yfirvinnukaup fyrir , sbr. til hliðsjónar grein 2.1.1.1 . Er málatilbúnaði stefnanda því hafnað um að haga beri greiðslu fyrir þá vinnu í samræmi við grein 2.3.10 . Takist aftur á móti ekki að fylgja samningnum að þessu leyti , þannig að starfsfólki sé gert að vinna umfram vinnuskyldu á tímabili sem hún hefur verið færð af, verður samkvæmt kjarasamningnum að greiða starfsfólk i yfirvinnukaup fyrir þá tíma sem það hefur unnið u mfram vikulega 36 tíma vinnuskyldu , sbr. kafla 2.3, einkum greinar 2.3.1, 2.3.7 og 2.3.10 , sem og grein 1.5.1 . 44 Stefndi hefur öðrum þræði stutt sýknukröfu sína við að fyrirkomulag hans um tilflutning vinnuskyldu, sbr. tilkynning 7. febrúar 2025 , sé reist á fyrrgreindri grein 2.1.1.1 í kjarasamningi aðila. Greinin áskilur ekki að gerður sé samningur um tilflutning vinnuskyldu, heldur veitir vinnuveitanda heimild til að dreifa vinnuskyldu starfsfólks á dögum , þar sem liggur , 12 , eins og þar segir . Á sú heimild einungis við um þær sérstöku aðstæður grunnskóla. 45 Í málinu hafa verið lagðar fram upplýsingar af vef stefnda um skipulag á starfi leikskóla í Hafnar f irði. Þar kemur fram að leikskóladagar séu að jafnaði 180 ári, en aðrir dagar séu skráningardagar , en þá þurfi foreldrar að skrá börn sín sérstaklega í leikskólann fyrir ákveðinn tíma . Eru skráningardagar þar sagðir t veir í október og tveir í febrúar , en þá séu vetrarfrí í grunnskólum , í kringum jólin frá 21. desember til og með 2. janúar, þrjá daga í dymbilviku og frá og með 10. júní til 10. ágúst. 46 Stefndi hefur einnig dagatal 2025 Samkvæmt dagatalinu eru skráningardagar samtals 12 og eru þeir á þeim tíma sem að framan greinir . Ber dagatalið ekki með sér að yfir sumarmánuðina séu skráningadagar , en 13. júlí hefst þó svonefndur Sumarskóli, sem stendur í eina viku. Sumarleyfi nær svo yfir tím abilið frá 20. júlí til 1. ágúst. 47 Samkvæmt framansögðu eru leikskólar í Hafnarf irði opnir á skráningardögum , þótt starfsemin sé þá almennt takmarkaðri en aðra daga . Í framburði varaformanns stefn - anda, Gundega Jaunlinina, kom fram að fagmenntað starfs fólk njóti forgangs að fríum á þeim dögum, og því vær i einkum félags fólk stefnanda þá við störf. 48 Að teknu tilliti til þeirra upplýsinga sem lagðar hafa verið fyrir Félagsdóm um starfs tíma leikskóla stefnda hafa ekki verið leid dar sönnur að því að skilyrðum fyrir beitingu greinar 2.1.1.1 sé fullnægt gagnvart félagsfólki stefnanda , enda starfsemi leikskólanna ekki takmörkuð hluta úr ári, eins og þar er áskilið , þótt þeim sé lokað yfir hásumarið og að dregið sé úr starfseminni á einstökum tímabilum . 49 Kemur þá til skoðunar hvort samið hafi verið um tilflutning á vinnuskyldu leikskóla - starfsfólks , eins og heimilt er samkvæmt grein 2.1.1 . Fyrirliggjandi t ilkynningar um tilflutning á vinnuskyldu leikskólastarfsmanna eru ekki settar fra m sem tilboð, heldur er þar gengið út frá samþykki félagsfólks stefnanda. Þar er mælt fyrir um 37 tíma vikulega vinnuskyldu og að ein klukkustund á viku safn i Vilji starfsfólk ekki lúta þessu fyrirkomulag i , og vinna áfram 36 virkar vinn ustundir á viku , þarf að láta yfirmann vita . Hafi fyrirkom u lagið tekið gildi og berist tilkynning um breytingu innan tilgreinds tímafrests tekur hún ekki gildi fyrr en um áramót. Ekki eru heldur gefin skýr fyrirheit af hálfu stefnda hvenær unnt sé að taka út úr - , einungis að reynt verði eftir fremsta megni að koma til móts við óskir starfsfólks um frídaga. Er því óljóst af hvaða dögum vinnuskyldan er flutt þegar vinnan er leyst af hendi . Aftur á móti er mælt fyrir um að uppsafnaða n tíma þurfi að taka út innan almanaksársins. 50 Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið er ekki unnt að fallast á að stefnd i hafi samið við leikskóla starfsfólk um tilflutning vinnuskyldu milli vikna eða árstíða á grundvelli greinar 2.1.1 í kjarasamningi aðila. Bera tilkynningarnar þannig ekki með sér að vera 13 reistar á samningi við starfsfólk. Breytir í því sambandi engu þótt frumkvæði að þeim breytingum sem tilkynningarnar lúti að kunni að hafa komið frá leikskóla starfsfólki og að það ge ti vikið sér undan fyrirmælum stefnda . Þá skiptir einnig máli að ekki er ljóst af tilkynningunum af hvaða tímabili vikuleg viðbótarklukkustund er flutt. 51 Að þessu gættu og með vísan til þess sem áður er rakið verður að leggja til grundvallar að fyrri liður greinar 2.1.1 í kjarasamningi aðila gildi , þannig að vinnuvika starfsfólks í fullu starfi eigi að vera 36 virkar vinnustundir , en ekki 37 vinnustundir eins og tilkynningarnar bera með sér . Í samræmi við grein 2.3.1 ber jafnframt að líta svo á að vikuleg v inna umfram það sé yfirvinna. Setja framangreind ákvæði kjarasamningsins að þessu leyti skorður við stjórnunarrétti vinnuveitanda. Með þessum rökum verður fyrri krafa stefnanda tekin til greina eins og í dómsorði greinir . 52 Af framansögðu leiðir að stefnda er skylt að greiða félagsmönnum stefnanda fullt yf irvinnukaup fyrir vinnu umfram 36 virkar vinnustundir á viku, sbr. grein ar 1.5.1 og 2.3.7 í kjarasamningi aðila, nema að samkomulag sé í gildi um söfnun frídaga vegna yfirvinnu samkvæmt grein 2.3.10 í kjara samningi aðila , en þá ber að greiða yfirvinnuálag, eins og þar er kveðið á um. Með þeim fyrirvara , sem stefnandi raunar gerir grein fyrir í rökstuðningi fyrir kröfugerð sinni , verður jafnframt fallist á síðari kröfu stefnanda , eins og í dómsorði greinir . 53 A ð virtum úrslitum málsins verður stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað eins og í dómsorði greinir. Dómsorð: Viðurkennt er að vinna félagsmanna stefnanda, Verkalýðsfélagsins Hlífar, sem starfa á leikskólum hjá stefnda, Hafnarfjarðarkaupstað, umfram 3 6 virkar vinnustundir á viku, sé yfirvinna í skilningi gr einar 2.3.1 í kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga . Jafnframt er viðurkennt að stefndi skuli greiða félagsmönnum stefnanda , sem starfa á leikskólum hjá stefnda , yfirvinnu kaup s amkvæmt gr ein 1.5.1 í sama kjarasamningi fyrir vinnu umfram 36 virkar vinnu - stundir á viku. Stefndi greiði stefnanda 6 00.000 krónur í málskostnað. Ásmundur Helgason Björn L. Bergsson Hólmfríður Grímsdóttir Karl Ó . Karlsson 14 Stefán Ólafsson