FÉLAGSDÓMUR Dómur mánudaginn 9. nóvember 20 2 6 . Mál nr. 4 /20 26 : Kennarasamband Íslands ( Gísli G. Hall lögmaður ) gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga ( Jóhannes Tómasson lögmaður ) Lykilorð Kjarasamningur . Launaflokkur. Útdráttur Ágreiningur aðila laut einkum að því hvort sveitarfélaginu Árborg hefði verið óheimilt að gera tvo aðskilda ráðningarsamninga við félagsmann stefnanda, annars vegar um hlutastarf sem náms - og starfsráðgjafi og hins vegar um hlutastarf sem grunnskólakennari , og hvort borið hefði að greiða viðkomandi laun sem náms - og starfsráðgjaf i 2 miðað við 100% starfshlutfall. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að kjarasamningur aðila stæði ekki í vegi fyrir gerð tveggja ráðningarsamninga enda væri um efnislega ólík störf að ræða sem krefðust aðskildra leyfa. Hins vegar fæli ákvæði 1.3.1 í kjarasamning i aðila í sér röðun sem kvæði á um stighækkandi laun grunnskólakennara eftir því sem sérhæfðari verkefni yrðu stærri hluti starfsskyldna þeirra. Þar sem starfsmaðurinn hafi verið í fullu starfi og sinnti náms - og starfsráðgjöf í hálfu starfi eða meira hafi borið að raða henni í launaflokk náms - og starfsráðgjafa 2 fyrir starfið í heild. Var viðurkennt að sveitarfélaginu væri skylt að greiða henni laun samkvæmt þeim launa flokki miðað við fullt starf, en var stefndi að öðru leyti sýknaður af kröfum stefnanda. Dómur Félagsdóms Mál þetta var dómtekið 13. október 2026. Mál ið dæma Ásmundur Helgason , Björn L. Bergsson , Lárentsínus Kristjánsson, Karl Ó. Karlsson og Stefán Ólafsson. Stefnandi er Kennarasamband Íslands, Borgartúni 30 í Reykjavík . Stefndi er Samband íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30 í Reykjavík . Dómkröfur stefnanda 2 1 Stefnandi krefst þess að v iðurkennt verði að Sveitarfélaginu Árborg hafi verið óheimilt, er það réði Klöru Öfjörð Sigfúsdóttur, kt. 190770 - 5599, grunnskólakennara, í starf náms - og starfsráðgjafa við Stekkjaskóla á Selfossi frá og með 1. ágúst 2023, að gera við hana tvo ráðningarsamninga, annan um s tarf náms - og starfsráðgjafa í 50% starfshlutfalli og hinn um grunnskólakennarastarf í 50% starfshlutfalli. Hið sama gildi um breytingu á ráðningarsamningunum frá og með 1. janúar 2024 á þann veg að hún yrði í starfi náms - og starfsráðgjafa í 80% starfshlu tfalli en í starfi grunnskólakennara í 20% starfshlutfalli . 2 Stefnandi krefst þess enn fremur að v iðurkennt verði að sveitarfélaginu Árborg sé - og 1.3.1 í kjar a samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara miðað við 100% starfshlutfall. 3 Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt mati Félagsdóms og að við ákvörðun málskostnaðar verði gætt a ð skyldu stefnanda til að greiða virðisaukaskatt af málflutningsþóknun. Dómkröfur stefnda 4 Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst hann málskostnað ar að mati Félagsdóms . 5 Með úrskurði Félagsdóms 10. júní 2026 var frávísunarkröfu stefnda ha fnað. Málavextir 6 Klara Öfjörð Sigfúsdóttir var ráðin í 50% starf sem náms - starfsráðgjafi í Stekkjaskóla í sveitarfélaginu Árborg 26. maí 2023 , en starfið hafði verið auglýst laust til umsóknar 11. apríl 2023. Klöru Öfjörð, sem er menntuð bæði sem náms - og starfsráðgjafi og grunnskólakennari, var í kjölfarið b oðið 50% kennslustarf samhliða fyrrgreindu starfi . Hún þáði það og var þá gerður við hana annar ráðningarsamningur 27. júní 2023 um 50% starf sem gr unnskólakennar i. Upphaf ráðningar samkvæmt báðum samningum var 1. ágúst 2023 , en um ráðningarkjör var kveðið á um að þau skyldu vera samkvæmt kjarasamningi stefnanda vegna Félags grunnskóla kennara við stefnda. 7 Í ráðningarsamningi um hálf t starf sem náms - og starfsráðgjafi 2 var Klöru Öfjörð grunnraðað í launflokk 238 samkvæmt kjarasamningi aðila sem hækkaði í launaflokk 245 - 5 á grunni persónulegra þátta. Í ráðningarsamningi við hana um hálft starf grunnskólakennara segir að henni sé grunnraðað í launaflokk 233 í sama kjarasamningi sem vegna hækkana á persónulegum þáttum leiddu til röðunar í launaflokk 240 - 5. Ágreiningslaust er að hún hefur í samræmi við þetta fengið greidd laun í tvennu lagi fyrir framangreind störf. 8 Í málin u liggja fyrir tölvupóstsamskipti milli formanns Félags grunnskólakennara, skólastjóra Stekkjaskóla og sérfræðings á kjarasviði stefnda frá september til 3 nóvember 2023 þar sem fjallað var um hvort framangreint ráðningarfyrirkomulag stæðist ákvæði gildandi kjarasamnings aðila. Í tölvupósti 22. nóvember 2023 lýsti formaður Félags grunnskólakennara þeirri afstöðu félagsins að þessi tilhögun færi gegn kjarasamningnum og vísaði í því sambandi til greina 1.3.1 og 14.3.1, enda bæri að gera einn ráðningarsamning ve gna sama kjarasamnings við hvern starfsmann. 9 Breytingar voru gerðar á störfum Klöru Öfjörð 19. júní 2024, þannig að s tarfshlutfall hennar sem náms - og starfsráðgjaf i var hækkað í 80% en starfshlutfall grunn - skólakennara lækkað í 20% . 10 Með bréfi 14. júní 202 4 gerði formaður Félags grunnskólakennara kröfu um greiðslu vangreiddra launa Klöru Öfjörð. Var byggt á því að framangreint ráðningarsamband samrýmdist ekki ákvæðum kjarasamnings . Sveitarfélagið Árborg hafnaði kröfunni með bréfi 12. júlí 2024 . 11 Ágreininguri nn var tekinn fyrir á 124. fundi samstarfsnefndar málsaðila 1. júlí 2025 en ekki náðist s amstaða um málið . Málsástæður og lagarök stefnanda 12 Stefnandi byggir á því að málið eigi undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölul ið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasa mninga opinberra starfsmanna. 13 Fyrri dómkrafa stefnanda l úti að því að fá viðurkennt með dómi að Árborg hafi verið óheimilt að ráða Klöru Öfjörð sem náms - og starfsráðgjafa og gera við hana tvo ráðningarsamninga, eins og kennsluhluti starfsins hafi verið an nað starf , og Klara meðhöndluð eins og tveir mismunandi starfsmenn í tveimur aðskildum hlutastörfum. 14 Í gr ein 14.3.1 í kjarasamnin gi aðila, með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. maí 2024, sem hafi verið framlengdur til 31. mars 2028 með samþykkt innanhústillögu ríkissáttasemjara 25. febrúar 2025, komi fram að gera eigi skriflegan ráðningar - samning við starfsmann í upphafi ráðningar. Að auki komi fram í skýringu að starfs - heiti kennara í ráðningarsamningi sé grunnskólakennari , en grunnlauna flokkur get i verið breytilegur frá einum tíma til annars í samræmi við starfaskil greiningu viðkomandi hverju sinni, sbr. gr ein 1.3.1. Starfaskilgreining sk uli ákveðin fyrir upphaf hvers skólaárs með sérstökum vinnuskýrslum. 15 Samkvæmt grein 1.3 ber i að raða grunns kólakennurum í launaflokka samkvæmt starfsheitum eins og skilgreint sé í ákvæðinu. Í grein 1.3.1 séu starfsheiti skilgreind og hljóð i starfsheiti sem hér reyni á svo: Grunnskólakennari (lfl. 233) Hefur réttindi og sinnir störfum grunnskólakennara í samræmi við lög, aðalnámskrá og skólanámskrá. Náms - og starfsráðgjafi 1 (lfl. 236) Uppfyllir skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í 25 - 49% starfi. 4 Náms - og starfsráðgjafi 2 (lfl. 238) Uppfyllir sk ilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í hálfu starfi eða meira. 16 Stefnandi byggir á því að s amkvæmt ákvæðinu ber i að flokka starfsmenn sem náms - og starfsráðgjafa 2 ef þeir sinn a því starfi í há lfu starfi eða meira og greiða þeim sem slíkum. Starfsmaður sem ráðinn sé sem náms - og starfsráðgjafi 2 get i auk verkefna sinna sem náms - og starfsráðgjafi, verið með 0 - 50% kennsluskyldu. Það sama gildi um verkefnastjóra í grunnskólum en kennsluskylda lækk i hlutfallslega miðað við ráðningarhlutfall verkefnisstjóra samkvæmt fylgiskjali 4 við kjarasamning. Aðrir starfsmenn grunnskóla , sem get i verið með kennsluskyldu , séu skólastjórar, aðstoðar - skólastjórar og deildarstjórar, en þeir tak i laun samkvæmt kjarasamningi stefnanda vegna Skólastjórafélags Íslands og stefnda. Þessi r starfsmenn eig i það sammerkt að vera almennt ekki ráðnir í tvö störf með tveimur mismunandi ráðningarsamningum, heldur sé gerður einn ráðningarsamningur um starf viðk omandi. Svo sé það fyrir - komulagsatriði, sem vinnuveitandi eigi ákvörðunarvald um hverju sinni (stjórnunar - réttur) hvert sé hlutfall kennslu á móti viðkomandi stjórnunar - eða sér sviðshlutverki, eins og gr ein 14.3.1 og ákvæðið í fylgiskjali 4 ger i ráð fyri r, sbr. einnig niðurstöðu í fundargerð samstarfsnefndar nr. 49 . 17 - og starfsráðgjaf i hafi fengið stað í kjarasamningi, hafi verið til þess að endurspegla að í starfinu felist að verulegu leyt i önnur sérhæfð störf heldur en kennsla, sem sérstök réttindi þ urfi til. Ekki hefði verið nein þörf á tveimur starfsheitum með mismunandi launaflokkum náms - og starfsráðgjafa ef hugsunin hefði verið að ráðinn yrði einn og sami starfs - maðurinn í tvö hlutast örf með tveimur ráðningarsamningum. 18 Stefnandi bendi á að samkvæmt a - lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum tel jist eða að meðaltali miðað við heilt ár er styttri en sambærilegs starfsmanns í fullu starfi . Klara Öfjörð sé með vinnutíma eins og hver annar starfsmaður í fullu starfi. Stefnandi vís i einnig til 4. gr. laganna. Þar segi að starfsmenn í hlutastörfum skul i ekki njóta hlutfallslega lakari kjara eða sæta la kari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi af þeirri ástæðu einni að þeir séu ekki í fullu starfi, nema slíkt sé á grundvelli - náms - og starfs - aunaflokkur væri mismunandi eftir starfshlutfalli (túlkun stefnda), þá væri það að mati stefnanda brot gegn 4. gr. og jafnræðisreglunni sem í henni fel i st, þ að er að segja að greidd væru mismunandi laun fyrir sömu störf eftir starfshlutfalli. Miðað við túl kun stefnda ætti þá að mati stefnanda allt eins að búa til nokkra launaflokka grunnskólakennara miðað við mismunandi starfshlutföll. 19 Með vísan til framangreinds kveðst stefnandi byggja á því að náms - og starfsráðgjafar geti haft kennsluskyldu á sama hátt og verkefnastjórar, skólastjórar, aðstoðar - skólastjórar og deildarstjórar. Grunnskólakennari rað i st í grunnlaunaflokk 233. Náms - 5 og starfsráðgjafi grunnlaunarað i st annað hvort í launaflokk 236 eða launaflokk 238 , eftir því hversu hátt hlutfall starfsins fe l i í sér náms - og starfsráðgjöf. Sinni sami einstaklingur hvoru tveggja náms - og starfsráðgjöf og kennslu eigi því ekki að raða viðkomandi í tvö hlutastörf, heldur grunnrað i st einstaklingurinn sem náms - og starfsráðgjafi 1 eða 2 , eftir því hversu stór hlut i starfsins sé náms - og starfsráðgjöf. 20 Stefnandi vísar til orðanna hljóðan viðkomandi ákvæða, samræmisskýringar og þess sjónarmiðs að túlka beri kjarasamningsákvæði á þann hátt að samrýmist ófrávíkjanlegum lagaákvæðum, í þessu tilviki ákvæðum laga nr. 10/2 004 um starfsmenn í hlutastörfum. 21 Auk alls framangreinds kveðst stefnandi byggja á því að ráðningarháttur Árborgar, sem hér sé til umfjöllunar, sé nýr af nálinni og fari gegn áratuga framkvæmd, að minnsta kosti haf i ekki rekið á fjörur stefnanda hingað til nein sambærileg tilvik. 22 Stefnandi vísar enn fremur til 1. gr. laga nr. 55/1980 um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, en þar k omi fram sú meginregla að laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semj i um, skul i ver a lágmarkskjör. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveð i skul i ógildir. Ráðningarháttur Árborgar, það er að gera tvo ráðningarsamninga við sömu manneskjuna um tvö mismunandi hlutastörf, fel i í s ér að hún f ái greidd laun að hluta samkvæmt lægri launaflokki en kveðið sé á um í kjarasamningi. Að þessu leyti sé ráðningarsamningur Klöru Öfjörð um starf grunn - skóla kennara ógildur að mati stefnanda . 23 Stefnandi kveður s einni dómkr öfu sína l úta að því að fá viðurkennt með dómi að Árborg sé skylt að greiða Klöru Öfjörð - og ein 1.3.1 í kjarasamningi miðað við fullt starf. 24 Krafan sé byggð á ákvæðum greinar 1.3.1. Þar segi að starfsmenn sem uppfyll i skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi s amkvæmt skilgreiningu laga nr. 35/2009 og séu náms - og starfsráðgjafar í hálfu starfi og meira, falli undir starfsheiti og launaflokkinn - og sta hafi byrjað í hálfu starfi sem náms - og starfsráðgjafi 2 við ráðningu í ágúst 2023 samkvæmt ráðningarsamningi og sé nú í 80% starfshlutfalli sem námsráðgjafi. Ljóst sé að mati stefnanda að starf hennar f alli undir framangre int starfsheiti og launaflokk. 25 Stefnandi kveður málsástæð ur sínar til stuðnings kröfu í 1. tölulið eiga jafnframt við um kröfu í 2. tölulið. Málsástæður og lagarök stefnda 26 Stefndi kveðst byggja sýknukröfu sína á því að sveitarfélaginu Árborg hafi verið hei milt að gera tvo ráðningarsamninga við umræddan starfsmann, annars vegar um stöðu náms - og starfsráðgjafa og hins vegar um stöðu grunnskólakennara. Hvergi verði séð að kjarasamningar stefnda og stefnanda setji slík takmörk við fyrirkomulagi 6 samningsgerðar og hefur tilvísun í gr ein 14.3.1 kjarasamnings aðila enga þýðingu, enda liggi fyrir að gerður hafi verið skriflegur samningur við starfsmanninn í báðum tilvikum. Þar sem engum slíkum takmörkunum samkvæmt lögum eða kjara - samningum sé til að dreifa telji ste fndi ljóst að ráðningarfyrirkomulagið hafi rúmast innan svigrúms Stekkjaskóla, meðal annars samkvæmt stjórnunarreglu og samningsfrelsi almennt, til að ákveða tilhögun ráðningarsambands síns við starfsmenn sína, svo lengi sem starfsmenn fari ekki á mis við kjarasamningsbundin réttindi sín. Í því sambandi áréttar stefndi jafnframt að starfsmaðurinn njóti fullra kjarasamnings - bundinna réttinda vegna beggja starfshlutverka. 27 Enn fremur áréttar stefndi að um eðlisólík störf sé að ræða sem réttlætanlegt og eðlileg t sé að gerðir séu tveir samningar um, með tveimur ólíkum launaflokkum. Falli náms - og starfsráðgjafi þannig ekki undir grunnskilgreiningu grunnskólakennara með þeim hætti sem stefnandi geri líklegt. Birtist þetta meðal annars í þeirri staðreynd að í öllum öðrum starfsheitaskilgreiningum gr einar 1.3.1 sé sérstaklega vísað til þess að viðkomandi uppfylli skilyrði sem grunnskólakennari. Eigi það ekki við um náms - og starfsráðgjafa, sem sé greinilega sérstakt skilgreint starfsheiti samkvæmt kjarasamningnum, ót engt starfi grunnskólakennara og ekki með heimild til kennslu. Menntunarkröfur séu ólíkar auk þess sem náms - og starfsráðgjafar hafi sérstakan vinnutíma samkvæmt gr ein 2.1.6.8 í kjarasamning i aðila og raðist í sérstakan launaflokk. Allt framangreint leiði til þess að eðlilegt sé að gerður sé greinarmunur milli náms - og starfsráðgjafar annars vegar og kennslu hins vegar og að laun taki mið af því að um ólík störf og skyldur sé að ræða. 28 Jafnframt hafi verið fullkomlega eðlilegt, eins og málsatvikum hafi verið háttað í fyrirliggjandi máli, að haga ráðningarsambandi aðila með þessum hætti. Einungis hafi verið auglýst í 50% starf náms - og starfsráðgjafa af hálfu Árborgar og hafi starfsmanninum verið fullkunnugt um það. Samningur um kennslu hafi bæst við síðar, þe gar sammæ l st hafi verið um að starfsmaðurinn myndi einnig sinna 50% kennslu, með umsömdum launum samkvæmt grunnlaunaflokki 233. Því hafi verið fullkomlega eðlilegt að haga ráðningarsambandi aðila með þeim hætti að um þessi tvö aðskildu störf gilti sitthvor ráðningarsamningurinn. Sömuleiðis telur stefndi að aldrei hefði komið til greina að ráða starfsmanninn í 50% starf grunnskólakennara til viðbótar við störf viðkomandi sem náms - og starfsráðgjafa ef slíkt hefði þýtt að starfsmaðurinn ætti rétt á fullum lau num sem náms - og starfsráðgjafi, meðal annars þar sem Stekkjaskóli hafði einungis heimild til að ráða náms - og starfsráðgjafa í 50% starf. Hafi fyrirkomulagið því verið ívilnandi fyrir starfsmanninn að þessu leyti. 29 Stefndi hafnar því jafnframt að ákvæði gr einar 1.3.1 í kjarasamning i aðila beri að skýra svo að flokka beri starfsmann sem náms - og starfsráðgjafa 2 vegna óskyldra starfa, líkt og stefnandi byggi á. Hvergi sé í greininni fjallað um að í starfsheitinu náms - og starfsráðgjafi 2 felist að viðkomandi eigi rétt á launum miðað við 100% störf sem slíkur óháð því hvort hann sé að vinna önnur störf en náms - og starfsráðgjöf, og 7 stand i engin haldbær rök til þeirrar víðtæku túlkunar. Stefndi árétta r jafnframt í þessu sambandi að hvergi sé í ákvæðum kjarasamn ings stefnanda og stefnda, skýringarákvæðum hans eða fylgiskjölum, áskilið eða gefið til kynna að náms - og starfsráðgjafi sinni kennslu og sé í gr ein 1.3.1 gerður augljós greinarmunur á milli kennarastarfa og náms - og starfsráðgjafa. 30 Þá tel ji stefndi að samanburður við verkefnastjóra eða aðra sem séu með kennsluskyldu enga þýðingu hafa , þar sem um sé að ræða störf sem séu í eðli sínu kennarastörf, en með aukinni stjórnunarábyrgð. Enn fremur sé í kjarasamningi stefnanda fyrir hönd F élags grunns kólakennara og stefnda sérstaklega samið um starfsheiti verkefnastjóra, sbr. fylgiskjal 4 við kjarasamninginn, og gildi það einungis fyrir það starfsheiti. Þá séu samningsaðilar sammála um að fela megi kennara 20% verkefnastjórn án sérstakrar viðbótargreið slu. Sé tilhögun ráðningarsambands verkefnastjóra því ekki fordæmisgefandi fyrir önnur starfsheiti í kafla 1.3 í kjarasamning num . Sú staðreynd að ekki hafi verið samið með sambærilegum hætti um náms - og starfsráðgjafa styð ji niðurstöðu stefnda um að það ha fi ekki verið ætlun samningsaðila að náms - og starfsráðgjafar sem hafi sinnt kennslu fengju full laun fyrir bæði störf sem náms - og starfsráðgjafar. 31 Enn fremur andmæli r stefndi því að mismunandi launaflokkar náms - og starfsráðgjafa hafi þýðingu í máli þessu, eða að það styðji málatilbúnað stefnanda að nokkru leyti. Þessi greinarmunur h afi einungis þýðingu hvað varð i innbyrðis launaflokkun náms - og starfsráðgjafa. Ekki sé um það deilt í máli þessu að starfsmaðurinn flokk i st í launaflokk náms - og starfsráðgjafa 2 vegna starfa sinna sem slíkur, bæði þegar hún hafi verið ráðin í 50% starf og þegar starfshlutfall hennar hafi verið aukið. Þá hafn i stefndi því sjálfstætt að sú fl okkun, sem líkt og stefnandi bendi á helg i st af því að í starfinu felist önnur sérhæfð störf en kennsla, geti leitt til þeirrar niðurstöðu að starfsmaður fái hærri laun fyrir kennslu en ella. 32 Stefndi kveðst sömuleiðis hafna m álatilbúnaði stefnanda er l ú t i að ákvæðum laga nr. 10/2004. Virðist sú umfjöllun að mati stefnda einkum lúta að flokkun milli náms - og starfsráðgjafa 1 og 2, sem ekki sé ágreiningur um í máli þessu, auk þess sem fyrir ligg i að starfsmaðurinn sé ekki í hlutastarfi hjá Stekkjaskóla , auk þess sem hvergi sé sýnt fram á að starfsmaðurinn, sem sé eini náms - og starfsráðgjafi vinnustaðarins, njóti hlutfallslega lakari kjara eða sæti lakari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi. H afi stefnandi því ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn u m málsástæður sínar þessa efnis. 33 Þá mótmælir stefndi staðhæfingum stefnanda um að fyrirkomulagið sé óvenjulegt, afi það tíðkast þó nokkuð að ráðið sé í blönduð störf með þessum hætti, t .a.m. þegar starfsmenn séu ráðnir í tvö störf sem stuðningsfulltrúar í skólum og sem starfsmenn í frístund eða félagsmiðstöðum. Að mati stefnda sé heimilt og eðlilegt, þegar um sé að ræða tvö aðskilin störf sem fall i undir ólíka menntun, starfsheiti og sky ldur, að afmarka 8 ráðningu með tveimur samningum og/eða launaflokkum enda séu kjör hvors samnings í samræmi við viðeigandi kjarasamning og myndi bann við slíku fyrirkomulagi fela í sér íþyngjandi og tilefnislaust inngrip í eðlilegt svigrúm vinnuveitanda til að haga fyrirkomulagi ráðningarsambanda sinna við starfsmenn sína, meðal annars samkvæmt stjórnunarrétti og samningsfrelsi aðila. Fyrir ligg i að í máli þessu séu kjör starfsmannsins í báðum tilvikum í fullu samræmi við kjarasamning. Tel ji stefndi jafnfram t að engin rök standi til þess að starfsmaðurinn í fyrirliggjandi máli fái hærri laun fyrir kennslu en aðrir grunnskólakennarar í hlutastarfi af þeirri ástæðu einni að hún sinni einnig óskyldu starfi náms - og starfsráðgjafa. Með því að hafa uppi slíkar krö fur sé stefnandi raunar í þversögn við eigin málatilbúnað um lög nr. 10/2004. 34 Loks sé því hafnað að ráðningarháttur Sveitarfélagsins Árborgar veiti umræddum starfsmanni lægri kjör en lágmarkskjör eða brjóti með einhverjum hætti í bága við ákvæði laga nr. 5 5/1980. Í því sambandi áréttar stefndi jafnframt að starfsmaðurinn njóti fullra kjarasamningsbundinna réttinda samkvæmt báðum samningum vegna beggja starfanna og fel i fyrirkomulagið því ekki í sér neina skerðingu á kjara - samningsbundnum réttindum starfsman nsins. 35 Að síðustu áréttar stefndi að öll framangreind sjónarmið eiga við, að breyttu breytanda, um breytingu á starfshlutfalli starfsmannsins í 80% starf náms - og starfsráðgjafa og 20% starf grunnskólakennara. H afi stefnandi ekki reifað með fullnægjandi hætti hvernig Árborg hafi verið óheimilt að gera slíkar breytingar á starfshlutfalli starfsmannsins. Hafi slík breyting rúmast innan eðlilegra heimilda vinnuveitenda og starfsmanna til að gera breytingar á sínu ráðningarsambandi. 36 S tefndi hafni því jafnframt að Sveitarfélaginu Árborg sé skylt að greiða starfs - manninum laun samkvæmt skilgreiningunni náms - og starfsráðgjafi 2 miðað við fullt starf. 37 Hvað sem framangreindu líð i bendir stefndi enn fremur á að jafnvel þótt fallist yrði á a ð einungis hefði átt að gera einn ráðningarsamning við viðkomandi starfsmann, leiði það fjarri lagi til þeirrar niðurstöðu að viðkomandi starfsmaður eigi rétt á fullum launum sem náms - og starfsráðgjafi fyrir allsendis ólík störf grunnskólakennara. 38 Með vís an til fyrri umfjöllunar verð i gr ein 1.3.1 ekki skýrð svo að hún veiti starfsmönnum sjálfkrafa rétt á 100% launum miðað við starfsheiti náms - og starfs - ráðgjafa ef þeir sinn i einnig kennslustörfum. Sú staðreynd að starfsmaður sé í einhverjum tilvikum með k ennsluréttindi og geti þannig kennt get i ekki leitt til þess að hann fái laun fyrir kennslu samkvæmt óskyldu starfsheiti, hærri laun en ella og um leið með hærri launakostnaði en ef viðkomandi grunnskóli væri með aðskilið fólk í þessum tveimur hlutastörfum . Slík niðurstaða, sem myndi jafnframt auka kostnað grunnskóla af blönduðum störfum um of og skerða tekjumöguleika þeirra starfsmanna sem njót i góðs af slíku fyrirkomulagi, meðal annars þeim starfsmanni sem hér um ræði, st andist ekki gagnrýna skoðun og f ái hvergi stoð í orðalagi kjarasamningsins. 9 Gildi einu í þessu sambandi hvort viðkomandi starfsmaður sé eða 80/20. Niðurstaða 39 Mál þetta lýtur að ágreiningi um skilning á kjarasamningi og á því undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölulið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986. 40 Í málinu greinir aðila á um tvennt. Annars vegar hvort kjarasamningur aðila hafi staðið í vegi fyrir því að tveir ráðningarsamningar væru gerðir við Klöru Öfjörð Sigfúsdóttur , félagsmann stefnanda , um hálft starf náms - og starfsráðgjafa og hálft starf grunnskólakennara við Stekkjaskóla . Hins vegar hvort borið hafi að greiða henni laun sem náms - og starfsráðgjafa 2 samkvæmt grein 1.3.1 og miða laun hennar fyrir fullt starf við launaflokk 238 , eða hvort rétt h afi verið að greiða henni laun , eins og S veitarfélagið Árborg gerði, á þann veg að hún fengi laun sem grunnskólakennari í hálfu starfi og náms - og starfsráðgjafi 2 í hálfu starfi . 41 Um ráðningu starfsmanna er fjallað í 14. kafla kjarasamnings málsaðila. Þar segir í grein 14.3.1 að skriflegur ráðningarsamningur skuli gerður við starfsmann við upphaf ráðningar. Í skýringartexta fyrir neðan grein ina , sem er aðgreindur frá meginmáli kjarasamningsins með sérstökum ramma , kemur fram að starfsheiti kennara í ráðningarsamningi sé grunnskólakennari en grunnlaunaflokkur geti verið breytilegur frá einum tíma til annars í samræmi við starfaskilgreiningar viðkomandi hverju sinni, sbr. gr ein 1.3.1. Þar segir einnig að starfaskilgreining sé ák veðin fyrir upphaf hvers skólaárs með sérstökum vinnuskýrslum. Við aðalmeðferð málsins kom fram af hálfu stefnanda að báðir samningsaðilar samþykki skýringartext a af þessum toga og sæt ti það engum andmælum af hálfu stefnda. 42 Í grein 1.3.1 er lýst starfshei tum og röðun grunnskólakennara í launaflokka eins og þar segir . Af greininni verður ráðið að grunnskólakennurum , sem ekki falla undir önnur starfsheiti , sé grunnraðað í launaflokk 233. Síðan eru talin upp ýmis önnur starfsheiti á borð við umsjónarkennara og sérkennara, sem og verkefnastjóra 1 og 2, en í öllum þe ssum tilvikum er kveðið á um að viðkomandi þurfi að uppfylla skilyrði sem grunnskólakennari, auk þess að gegna tilteknum öðrum verkefnum sem þar er lýst . Í þeirri upptalningu er jafnframt fjallað u m n áms - og starfsráðgjafa 1 og 2. Fyrra starfsheitinu er lýst svo: Uppfyllir skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í 25 - 49% starfi. Starfsheiti náms - og starfsráðgjafa 2 er síðan svohljóðandi: Uppfyllir skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í hálfu starfi eða meira. Munurinn milli náms - og starfsráðgjafa 1 og 2 einskorðast því við starfshlutfall viðkomandi og ræður hlutfallið röðun í mismunandi launaflokka , annars vegar flokk 10 236 og hins vegar flokk 238. Ekki er í greininni kveðið á um að náms - og starfsráðgjafi þurfi að uppfylla skilyrði sem grunnskólakennari, eins og á við um umsjónarkennara, sérkennara og verkefni sstjóra. Í lögum nr. 35/2009 um náms - og starfsráðgjafa er heldur ekki gerð krafa um að þeir uppfylli skilyrði til að starfa sem kennar ar samkvæmt lögum nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framh aldsskóla. 43 Efnislega falla störf Klöru Öfjörð undir ólík starf sheiti samkvæmt grein 1.3.1 í kjarasamningi aðila, annars vegar starfsheitið grunnskólakennara og hins vegar náms - og starfsráðgjafa 2 , og verður að ætla að verkefnin séu mismunandi . Áskilið leyfi til að gegna þessum störfum skarast ekki og er ekki er sjálfgefið að náms - og starfsráðgjafar séu jafnframt með kennaramenntun. Hvorki í grein 14.3.1 né í grein 1.3.1 í kjarasamningi aðila er kveðið á um að gera skuli einn ráðningarsamning við sama s tarfsmann um þessi störf eða önnur sem falla undir samninginn . Verður því ekki ráðið af því sem fram kemur í kjarasamningnum að hann standi í vegi fyrir því að tveir ráðningarsamningar séu gerðir við sama starfsmann um þau. Af því leiðir sýkna ber stefnda af fyrri kröfu stefnanda. 44 Á hinn bóginn er til þess að líta að grein 1.3.1 í kjarasamningnum miðar að því að raða grunnskólakennurum í launaflokka, eins og skýrt kemur fram í upphafi greinarinnar , auk þess sem kjarasamningurinn er gerður fyrir hönd félaga í Félag i grunnskólakennara. Eins og rakið hefur verið er í greininni lýst tilteknum starfsheitum og í tilviki sérkennara, náms - og starfsráðgjafa og verkefnastjóra er ákveðið starfshlutfall áskilið til að starfið falli þar undir. Fari starfshlutfall náms - og starfsráðgjafa og verkefnastjóra yfir hálft starf færist það eins og áður segir í hærri launaflokk. Í ljósi f ramsetning ar ákvæðisins að þessu leyti er fallist á með stefnanda að þar sé mælt fyrir um röðun , sem felur í sér stighækkandi laun grunns kólakennara eftir því sem önnur störf , sem þar eru skilgreind , verða stærri hluti af starfsskyldu num . Samkvæmt því lýsir kjarasamningur inn ekki sérstökum hlutastörfum heldur eftir atvikum blönduðum störfum, enda f engi framsetning kjarasamningsins hvað varð ar náms - og starfsráðgjafa og verkefnastjóra að öðrum kosti vart samrýmst 1. mgr. 4. gr. laga nr. 10/2004, en þar er mælt fyrir um að starfsmenn í hlutastörfum skuli ekki njóta hlutfallslega lakari kjara eða sæta lakari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi , nema slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlutlægra ástæðna . 45 Með ráðningu Klöru Öfjörð í hálft starf grunnskólakennara var hún ráðin í fullt starf við Stekkjaskóla, enda hafði hún áður verið ráðin í hálft starf sem náms - og starfsráðgjafi. Hún var því grunnskólakennari sem jafnframt gegndi starfi náms - og starfsráðgjafa í hálfu starfi og bar samkvæmt framansögðu að raða henni sem náms - og starfsráðgjafa 2 í grunnlaunaflokk 238. Samkvæmt því verður síðari krafa stefnanda tekin til greina. 11 46 Að teknu tilliti til framangreindrar niðurstöðu , og í ljósi þess að frávísunar kröfu stefnda var hafnað með úrskurði Félagsdóms 10. júní 2026 , verður stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað eins og í dómsorði greinir. Dómsorð: Viðurkennt er að sveitarfél aginu Árborg sé skylt að greiða Klöru Öfjörð Sigfúsdóttur - kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara miðað við 1 00% starfshlutfall. Stefndi, Samband íslenskra sveitarfélaga, er að öðru leyti sýkn af kröfum stefnanda, Kennarasambands Íslands . Stefndi greiði stefnanda 500.000 krónur í málskostnað. 12 FÉLAGSDÓMUR Úrskurður miðvikudaginn 10. júní 2026. Mál nr. 4/2026: Kennarasamband Íslands ( Gísli G. Hall lögmaður ) gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga ( Óskar Sigurðsson lögmaður ) Lykilorð Frávísunarkröfu hafnað. Kjarasamningur. Útdráttur Frávísunarkrafa stefnda var annars vegar reist á því að sakarefnið heyr ði ekki undir Félagsdóm og hins vegar að kröfugerð stefnanda væri ekki dómtæk og fullnæg ð i ekki áskilnaði 25. gr. laga nr. 91/199 1. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að k rafa stefnanda styddist samkvæmt stefnu málsins við þau rök að tilgreind ákvæði kja rasamningsins se ttu stjórnunarrétti vinnuveitandans skorður og var því litið svo á að s akarefni málsins heyr ð i undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 . Þá væri unnt að leggja dóm á viðurkenningarkröfu stefnanda, enda tel dist hún nægilega skýr að efni til , auk þess sem að kröfugerðin væri sett fram vegna ágreinings um réttarstöðu félagsmanns í stefnanda , en bæði félagsmaðurinn og stefnandi h efðu lögvarða hagsmuni af úrlausn sakarefnisins . Var frávísunarkröfu stefnda því hafnað. Úrskurður Félagsdóms Mál þetta var tekið til úrskurðar 2. júní 2026. Mál ið úrskurða Ásmundur Helgason , Björn L. Bergsson , Lárentsínus Kristjánsson, Karl Ó. Karlsson og Stefán Ólafsson. Stefnandi er Kennarasamband Íslands, Borgartúni 30 í Reykjavík . St efndi er Samband íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30 í Reykjavík. Dómkröfur stefnanda 47 Stefnandi krefst þess að viðurkennt verði að Sveitarfélaginu Árborg hafi verið óheimilt, er það réði A , kt. , grunnskólakennara, í starf náms - og starfsráðgjafa við Stekkjaskóla á Selfossi frá og með 1. ágúst 2023, að gera við hana tvo ráðningarsamninga, annan um starf náms - og starfsráðgjafa í 50% starfshlutfalli og hinn um grunnskólakennarastarf í 50% starfshlutfalli. Hið sama gildi um breytingu á ráðningarsamningu num frá og með 1. janúar 2024 á þann veg að hún yrði í starfi 13 náms - og starfsráðgjafa í 80% starfshlutfalli en í starfi grunnskólakennara í 20% starfshlutfalli . 48 Stefnandi krefst þess enn fremur að v iðurkennt verði að sveitarfélaginu Árborg sé skylt að greiða áðurnefndri A - og starfsráðgjafi a samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólaken nara miðað við 100% starfshlutfall. 49 Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt mati Félagsdóms og að við ákvörðun málskostnaðar verði gætt að skyldu stefnanda til að greiða virðisaukaskatt af málflutningsþóknun. Dómkröfur stefnda 50 Stefndi krefst þes s aðallega að kröfum stefnanda verði vísað frá Félagsdómi, en til vara að stefndi verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi þess í báðum tilvikum að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað að mati Félagsdóms . Málavextir 51 A var 25. maí 2023 ráðin í 50% starf sem náms - starfsráðgjafi í Stekkjarskóla í sveitarfélaginu Árborg, en starfið hafði verið auglýst laust til umsóknar 10. mars 2023. A, sem er menntuð bæði sem náms - og starfsráðgjafi og grunnskólakennari, var í kjölfari ð b oðið 50% kennslustarf samhliða fyrrgreindu starfi og var 27 . júní 2023 gerður við hana annar ráðningarsamningur um 50% starf sem grunnskólakennar i. 52 Í ráðningarsamningi við A um 50% starf grunnskólakennara kemur fram að henni sé grunnraðað í launaflokk 2 33 í kjarasamningi aðila sem vegna hækkana á persónulegum þáttum leiddu til röðunar í launaflokk 240 - 5. Í ráðningarsamningi hennar um 50% starf sem náms - og starfsráðgjafi 2 var henni grunnraðað í launflokk 238 samkvæmt sama kjarasamningi sem hækkaði í lau naflokk 245 - 5 á grunni persónulegra þátta. 53 Í málinu liggja fyrir tölvupóstsamskipti milli formanns Félags grunnskólakennara, skólastjóra Stekkjarskóla og sérfræðings á kjarasviði stefnda frá september til nóvember 2023 þar sem fjallað var um hvort framangr eint ráðningarfyrirkomulag stæðist ákvæði gildandi kjarasamnings aðila. Í tölvupósti 22. nóvember 2023 lýsti formaður Félags grunnskólakennara þeirri afstöðu félagsins að þessi tilhögun færi gegn kjarasamningnum og vísaði í því sambandi til greina 1.3.1 og 14.3.1, enda bæri 54 Breytingar voru gerðar á störfum A 19. júní 2024, þannig að s tarfshlutfall hennar sem náms - og starfsráðgjaf i var hækkað í 80% en starfshlutfall grunn skólake nnara lækkað í 20% . 14 55 Með bréfi 14. júní 2024 gerði formaður Félags grunnskólakennara kröfu um greiðslu vangreiddra launa A. Var byggt á því að framangreint ráðningarsamband samrýmdist ekki ákvæðum kjarasamnings . Sveitarfélagið Árborg hafnaði kröfunni með br éfi 12. júlí 2024 . 56 Ágreiningurinn var tekinn fyrir á 124. fundi samstarfsnefndar málsaðila 1. júlí 2025 en ekki náðist s amstaða um málið . Málsástæður og lagarök stefnanda 57 Stefnandi kveðst byggja á því að málið eigi undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölul ið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. 58 Fyrri dómkrafa stefnanda l úti að því að fá viðurkennt með dómi að Árborg hafi verið óheimilt að ráða A sem náms - og starfsráðgjafa og gera við hana tvo ráðningarsamninga, eins og ken nsluhluti starfsins hafi verið annað starf , og A meðhöndluð eins og tveir mismunandi starfsmenn í tveimur aðskildum hlutastörfum. 59 Í gr ein 14.3.1 í kjarasamnin gi aðila, með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. maí 2024, sem hafi verið framlengdur til 31. ma rs 2028 með samþykkt innanhústillögu ríkissáttasemjara 25. febrúar 2025, komi fram að gera eigi skriflegan ráðningar - samning við starfsmann í upphafi ráðningar. Að auki komi fram í skýringu að starfsheiti kennara í ráðningarsamningi sé grunnskólakennari , e n grunnlauna flokkur get i verið breytilegur frá einum tíma til annars í samræmi við starfaskil greiningu viðkomandi hverju sinni, sbr. gr. 1.3.1. Starfaskilgreining sk uli ákveðin fyrir upphaf hvers skólaárs með sérstökum vinnuskýrslum. 60 Samkvæmt grein 1.3 b er i að raða grunnskólakennurum í launaflokka samkvæmt starfsheitum eins og skilgreint sé í ákvæðinu. Í grein 1.3.1 séu starfsheiti skilgreind og hljóð i starfsheiti sem hér reyni á svo: Grunnskólakennari (lfl. 233) Hefur réttindi og sinnir störfum grunnskólakennara í samræmi við lög, aðalnámskrá og skólanámskrá. Náms - og starfsráðgjafi 1 (lfl. 236) Uppfyllir skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í 25 - 49% starfi. Náms - og starfsráðgjaf i 2 (lfl. 238) Uppfyllir skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms - og starfsráðgjafi í hálfu starfi eða meira. 61 Stefnandi byggir á því að s amkvæmt ákvæðinu ber i að flokka starfsmenn sem náms - og starfsráðgjafa 2 ef þeir sinn a því starfi í hálfu starfi eða meira og greiða þeim sem slíkum. Starfsmaður sem ráðinn sé sem náms - og starfsráðgjafi 2 get i auk verkefna sinna sem náms - og starfsráðgjafi, verið með 0 - 50% kennsluskyldu. Það sama gildi um verkefnastjóra í grunnskólum en kennsluskylda lækk i hlutfallslega miðað við 15 ráðningarhlutfall verkefnisstjóra samkvæmt fylgiskjali 4 við kjarasamning. Aðrir s tarfsmenn grunnskóla , sem get i verið með kennsluskyldu , séu skólastjórar, aðstoðar - skólastjórar og deildarstjórar, en þeir tak i laun samkvæmt kjarasamningi stefnanda vegna Skólastjórafélags Íslands og stefnda. Þessi starfsmenn eig i það sammerkt að vera al mennt ekki ráðnir í tvö störf með tveimur mismunandi ráðningarsamningum, heldur sé gerður einn ráðningarsamningur um starf viðkomandi. Svo sé það fyrirkomulagsatriði, sem vinnuveitandi eigi ákvörðunarvald um hverju sinni (stjórnunarréttur) hvert sé hlutfal l kennslu á móti viðkomandi stjórnunar - eða sér - sviðshlutverki, eins og gr ein 14.3.1 og ákvæðið í fylgiskjali 4 ger i ráð fyrir, sbr. einnig niðurstöðu í fundargerð samstarfsnefndar nr. 49 . 62 - og starfsráðg jaf i hafi fengið stað í kjarasamningi, hafi verið til þess að endurspegla að í starfinu felist að verulegu leyti önnur sérhæfð störf heldur en kennsla, sem sérstök réttindi þ urfi til. Ekki hefði verið nein þörf á tveimur starfsheitum með mism unandi launaflokkum náms - og starfsráðgjafa ef hugsunin hefði verið að ráðinn yrði einn og sami starfsmaðurinn í tvö hlutastörf með tveimur ráðningarsamningum. 63 Stefnandi bendi á að samkvæmt a - lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum tel jist A sé með vinnutíma eins og hver annar starfsmaður í fullu starfi. Stefnandi vís i einnig til 4. gr. laganna. Þar segi að starfsmenn í hlutastörfum skul i ekki njóta hlutfallslega lakari kjara eða sæta lakari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi af þeirri ástæðu einni að þeir séu ekki í fullu starfi, nema slíkt sé á grundvelli hlut lægra - náms - og starfs væru hugsuð þannig að launaflokkur væri mismunandi eftir starfshlutfalli (túlkun stefnda), þá væri það að mati stefnanda brot gegn 4. gr. og jafnræðisreglunni sem í henni fel i st, þ að er að segja að greidd væru mismunandi laun fyrir sömu störf eftir starfshlutfalli. Miðað við túlkun stefnda ætti þá að mati stefnanda allt eins að búa til nokkra launaflokka grunnskólakennara miðað við mismunandi starfshlutföll. 64 Með vísan til framangreinds kveðst stefnandi byggja á því að náms - og starfsráðgjafar geti haft kennsluskyldu á sama hátt og verkefnastjórar, skólastjórar, aðstoðar - skólastjórar og deildarstjórar. Grunnskólakennari rað i st í grunnlaunaflokk 233. Náms - og starfsráðgjafi grunnlaunarað i st annað hvort í launaflokk 236 eða launaflokk 238 , eftir því hversu hátt hlutfall starfsins fel i í sér náms - og starfsráðgjöf. Sinni sami einstaklingur hvoru tveggja náms - og starfsráðgjöf o g kennslu eigi því ekki að raða viðkomandi í tvö hlutastörf, heldur grunnrað i st einstaklingurinn sem náms - og starfsráðgjafi 1 eða 2 , eftir því hversu stór hluti starfsins sé náms - og starfsráðgjöf. 65 Stefnandi vísar til orðanna hljóðan viðkomandi ákvæða, sa mræmisskýringar og þess sjónarmiðs að túlka beri kjarasamningsákvæði á þann hátt að samrýmist 16 ófrávíkjanlegum lagaákvæðum, í þessu tilviki ákvæðum laga nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum. 66 Auk alls framangreinds kveðst stefnandi byggja á því að ráðnin garháttur Árborgar, sem hér sé til umfjöllunar, sé nýr af nálinni og fari gegn áratuga framkvæmd, að minnsta kosti haf i ekki rekið á fjörur stefnanda hingað til nein sambærileg tilvik. 67 Stefnandi vísar enn fremur til 1. gr. laga nr. 55/1980 um starfskj ör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, en þar k omi fram sú meginregla að laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semj i um, skul i vera lágmarkskjör. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir al mennu kjarasamningar ákveð i skul i ógildir. Ráðningarháttur Árborgar, það er að gera tvo ráðningarsamninga við sömu manneskjuna um tvö mismunandi hlutastörf, fel i í sér að hún f ái greidd laun að hluta samkvæmt lægri launaflokki en kveðið sé á um í kjarasamn ingi. Að þessu leyti sé ráðningarsamningur A um starf grunnskóla kennara ógildur að mati stefnanda . 68 Stefnandi kveður s einni dómkr öfu sína l úta að því að fá viðurkennt með dómi að Árborg sé skylt að greiða A - og starfsrá ðgjafi ein 1.3.1 í kjarasamningi miðað við fullt starf. 69 Krafan sé byggð á ákvæðum greinar 1.3.1. Þar segi að starfsmenn sem uppfyll i skilyrði sem náms - og starfsráðgjafi s amkvæmt skilgreiningu laga nr. 35/2009 og séu náms - og starfsráðgja far í hálfu starfi og meira, falli undir starfsheiti og launaflokkinn - A hafi byrjað í hálfu starfi sem náms - og starfsráðgjafi 2 við ráðningu í ágúst 2023 samkvæmt ráðningarsamningi og sé nú í 80% starfshlutfalli sem námsráðgjafi. Ljóst sé að mati stefnanda að starf hennar f alli undir framangreint starfsheiti og launaflokk. 70 Stefnandi kveður málsástæð ur sínar til stuðnings kröfu í 1. tölulið eiga jafnframt við um kröfu í 2. tölulið. Um sam bærilegan hátt á kröfugerð vís ar stefnandi til dóma Félagsdóms nr. F - 2/2015 og F - 29/2015. 71 Um málskostnaðarkröfu sína kveðst stefnandi vísa til 130. gr., sbr. 129. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Stefnandi sé ekki virðisaukaskattskyldur og eign i s t því ekki frádráttarrétt við greiðslu virðisaukaskatti af aðkeyptri lögmannsþjónustu. Málsástæður og lagarök stefnda 72 Stefndi kveðst bygg ja frávísunarkröfu sína í fyrsta lagi á því að ágreiningsmál þetta heyr i ekki undir lögsögu Félagsdóms. Að mati stefnda l ú t i ágreiningur málsaðila í reynd ekki að túlkun kjarasamninga, heldur sé í eðli sínu um að ræða ágreining milli starfsmanns og vinnuveitanda um ákvörðun launa og ráðningarfyrirkomulag. 73 Óumdeilt sé að starfsmaðurinn starf i fyrir stefnda samkvæmt tveimur ráðningar - samningum og f alli í grunnlaunaflokk 238 vegna starfa sinna sem náms - og starfsráðgjafi, og í grunnlaunaflokk 233 vegna kennslustarfa sinna. Ágreiningur um 17 lögmæti ráðningarfyrirkomulags starfsmannsins, þ að er hvort tilteknum vinnustað sé heimil t að ráða starfsmanninn í tvö störf eða hvort ákvörðun starfskjara hennar brjóti með einhverjum hætti gegn ákvæðum laga nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum, teljist hins vegar ekki til ágreinings um skilning kjarasamnings samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 26 . gr. laga nr. 94/1986, enda sé hvergi tekið á slíku í kjarasamningi stefnanda og stefnda; ekki hafi verið samið um slíkt sérstaklega. Gildi einu í framangreindu samhengi þótt málinu hafi verið vísað til samstarfsnefndar. 74 Í öðru lagi bendi r stefndi á að ré ttaráhrif þess að fallist sé á 1. tölulið dómkröfu stefnanda séu óljós , enda fel i viðurkenningardómur um ætlað ólögmæti ráðningar - fyrirkomulagsins, og jafnframt síðari breytingu á starfshlutfalli starfsmannsins samkvæmt ráðningarsamningunum tveimur, ekki í sér dóm um skyldu Sveitar - félagsins Árborgar til að gera einn ráðningarsamning sama efnis við starfsmanninn. Slík niðurstaða verði ekki heldur leidd af 2. tölulið dómkröfu stefnanda, sem sé eðli málsins samkvæmt háð þeirri forsendu að viðkomandi starfsmaður sé samanlagt í fullu starfi hjá Sveitarfélaginu Árborg. Að þessu virtu f ái stefndi ekki séð að kröfur stefnanda séu dómtækar eða að þær fullnægi kröfum 25. gr. laga nr. 91/1991 að öðru le yti og ber i því að mati stefnda einnig að vísa þeim frá sjálfstætt af þeim sökum. Niðurstaða 75 Frávísunarkrafa stefnda er einungis til umfjöllunar í úrskurði þessum. Er sú krafa annars vegar reist á því að sakarefnið heyri ekki undir Félagsdóm og hins vegar að kröfugerð stefnanda sé ekki dómtæk og fullnægi ekki áskilnaði 25. gr. laga nr. 91/1991. 76 Samkvæmt 3. tölulið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna dæmir Félagsdómur í málum sem rísa milli samningsaðila um ágreining um s kilning á kjarasamningi eða gildi hans. Krafa stefnanda um viðurkenningu á því að Sveitarfélaginu Árborg hafi verið óheimilt að gera tvo ráðningarsamninga við A um hlutastörf, annars vegar í starf grunnskólakennara og hins vegar í starf náms - og starfsráðg jafa, styðst samkvæmt stefnu málsins við þau rök að tilgreind ákvæði kjarasamningsins setji stjórnunarrétti vinnuveitandans skorður að því leyti. Er nánar tiltekið á því byggt að sú ráðningartilhögun fari gegn ákvæðum kjarasamningsins, eins og þau beri að skilja í ljósi þess sem þar segir og með hliðsjón af tilteknum ákvæðum laga nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum. Sama á við um síðari kröfu stefnanda í málinu. Stefndi hefur mótmælt þeim skilningi sem stefnandi leggur í kjarasamninginn. Sakarefni máls ins heyrir samkvæmt framansögðu undir Félagsdóm með vísan til 3. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986. 77 Að mati réttarins er Félagsdómi unnt að leggja dóm á viðurkenningarkröfu stefnanda, enda telst hún nægilega skýr að efni til, þótt stefnda þyki ré ttaráhrif viðurkenningar - dóms um það efni óljós. Þá er kröfugerðin sett fram vegna ágreinings um réttarstöðu félagsmanns í stefnanda sem hefur lögvarða hagsmuni af úrlausn sakarefnisins. Að auki hefur stefnandi hagsmuni af því að fá leyst úr skilningi hans á inntaki 18 kjarasamnings og hann sé rétt efndur og túlkaður að hans áliti. Fer kröfugerðin því ekki í bága við 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 78 Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið verður frávísunarkröfu stefnda hafnað. Rétt þykir að ákvörðun málskostnaðar vegna þessa þáttar málsins bíði efnisniðurstöðu málsins. Úrskurðar orð: Frávísunarkröfu stefnda, Sambands íslenskra sveitarfélaga, er hafnað Ákvörðun málskostnaðar bíður efnisdóms.