FÉLAGSDÓMUR Úrskurður þriðjudaginn 22. september 20 26 . Mál nr. 5 / 2026 : Verkfræðingafélag Íslands ( Elías Karl Guðmundsson lögmaður ) gegn íslenska ríkinu vegna Vegagerðarinnar ( Ingvi Snær Einarsson lögmaður) Lykilorð Frávísunarkröfu hafnað . Kjarasamningur Útdráttur Frávísunarkrafa stefnda var annars vegar reist á því að sakarefnið heyrði ekki undir Félagsdóm, þar sem ágreiningurinn varðaði einstaklingsbundin réttindi og einkaréttarlega samninga, og hins vegar að dómkrafan fæli í sér lögspur ningu og fullnægði ekki áskilnaði 25. gr. laga nr. 91/1991 um lögvarða hagsmuni. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ágreiningur aðila lyti að skilningi og gildissviði tilgreinds ákvæðis kjarasamnings þeirra um uppsagnarfrest við breytingar á ráðning arkjörum er fel i í sér launaskerðingu og heyrði sakarefnið því undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986. Þá væri viðurkenningarkrafa stefnanda nægilega skýr og samrýmdist 25. gr. laga nr. 91/1991, auk þess sem stefnandi og félags menn hans hjá V hefðu lögvarða hagsmuni af úrlausn sakarefnisins þar sem niðurstaðan hefði raunhæfa þýðingu fyrir réttarstöðu þeirra. Var frávísunarkröfu stefnda því hafnað. Úrskurður Félagsdóms Mál þetta var tekið til úrskurðar 8 . september sl. Mál ið úrskurða Ásmundur Helgason , Björn L. Bergsson , Hólmfríður Grímsdóttir, Jón Sigurðsson og Inga Björg Hjaltadóttir . Stefnandi er Verkfræðingafélag Íslands , Engjateig 9 í Reykjavík . Stefndi er íslenska ríki ð , Arnarhvoli í Reykjavík, vegna Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ . Dómkröfur stefnanda 1 Stefnandi krefst þess að Félagsdómur viðurkenni að stefnda sé óheimilt að breyta einhliða ráðningarsamningum félagsmanna stefnanda, sem starfa hjá Vegagerðinni, þannig að leiði til launaskerðingar, með skemmri fresti en samningsbundnum 2 uppsagnarfresti hvers og eins félagsmanns. Kr afist er málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda. Dómkröfur stefnda 2 Stefndi krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá Félagsdómi en til vara er krafist sýknu af kröfum stefnanda. Í báðum tilvikum krefst stefndi að stefnanda verði gert að greiða st efnda málskostnað samkvæmt mati Félagsdóms . Málavextir 3 Stefnandi er stéttarfélag sem geri r kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna við vinnuveitendur . Félagið hefur meðal annars gert kjarasamning við fjármálaráðherra fyrir hönd stefnda, íslenska ríkið . Vegagerðin er ein þeirra ríkisstofnana þar sem félagsmenn stefnanda star fa , en um kjör þeirra fer samkvæmt því sem segir í gildandi kjarasamningi málsaðila . 4 Með dómi Landsréttar 19 . júní 2025 í máli nr. 361/2024 var staðfest niðurstaða héraðsdóms þess ef nis að íslenska ríkinu bæri að greiða stefnanda málsins, starfs - manni ríkisins, orlofslaun af fastri yfirvinnu, þar sem ekki hefði verið samið sérstaklega um að orlofsfé yrði ekki greitt af yfirvinnu . Í kjölfar dómsniðurstöðunnar mun skrifstofa kjara - og m annauðs mála í fjármála - og efnahagsráðuneytinu hafa gefið út leiðbeinandi tilmæli til forstöðumanna ríkisstofnana um hvernig bregðast skyldi við kröfum starfs fólks þegar sambærilegar aðstæður væru uppi . 5 Vegagerðin gerði upp við þá starfsmenn sem settu fr am kröfu um greiðslu orlofs af fastri yfirvinnu á framangreindum grundvelli . Kröfur voru greiddar fjögur ár aftur í tímann með hliðsjón af ákvæðum 3. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. 6 Vegagerðin sendi starfs fólki enn fremur tilboð 29. janúar 2026 um viðauka við gildandi ráðningarsamninga sem fól í sér breytingu á ákvæðum um fasta yfirvinnu . Í skilaboðum sem fylgdu tilboðinu var óskað eftir að starfsmenn undirrituðu viðaukann . Þar kom enn fremur fram að hjá Vegagerðinni væru fastar yfirv innu stundir greiddar alla mánuði ársins, einnig þegar starfsfólk væri í orlofi og væri orl ofsfé samkvæmt kjarasamningi innifalið í greiðslunni. Vegna tilmæla skrifstofu kjara - og mannauðsmála ríkisins hefði Vega gerðin sagt upp með þriggja mánaða fyrirvar a þeim hluta ráðningarsamninga sem fjall i um fasta yfirvinnu , en miðað væri við að við - aukinn kæmi í hans stað. 7 Stefnandi hefur lagt fram eintak af viðauka við ráðningarsamning tilgreinds starfsmanns Vegagerðarinnar með gildistíma frá 1. maí 202 6. Þar er mælt fyrir um fjölda fastra yfirvinnutíma í mánuði . Þar segir enn fremur að fastar yfirvinnustundir séu greiddar alla mánuði ársins og sé orlofsfé samkvæmt kjarasamningi innifalið í greiðslunum. Þar er einnig kveðið á um að segja megi samningnum upp með þr iggja mánaða fyrirvara. 3 8 Ágreiningur varð milli aðila um framangreinda framkvæmd . H efur stefnandi meðal annars gert athugasemd við að ákvæði ráðningarsamnings um fasta greiðslu fyrir yfirvinnu hafi verið sagt upp með þriggja mánaða uppsagnarfresti gagnvart félagsmönnum í stefnanda sem væru með lengri uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningi eða á öðrum grundvelli . Málsástæður og lagarök stefnanda 9 Stefnandi kveður ágreining málsins snú a st um túlkun á gr ein 17.1 .1 í kjarasamningi aðila. Ákvæðið mælir fyrir um að sé starfsmanni sagt upp , eftir að minnsta kosti tíu ára samfellt starf , skuli uppsagnarfrestur vera fjórir mánuðir sé starfsmaðurinn orðinn 55 ára, fimm mánuðir ef hann er orðinn 60 ára og sex mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára. 10 Stefnandi byggir á því að það leiði af ákvæðinu að vinnuveitandi geti ekki sagt upp ráðningarkjörum, svo leiði til launalækkunar fyrir starfsm a nn, nema að uppsögnin sé að virtum umsömdum uppsagnarfresti gagnvart hverjum og einum starfsmanni. Í þeim tilvikum þar sem einstaka starfs menn njóti lengri uppsagnarfrests, óháð því hvort það sé samkvæmt kjarasamningi eða á öðrum grundvelli, verði vinnuveitandi að virða þann uppsagnarfrest, jafnvel þótt tilgangur vinnuveitanda með uppsögn ráðningar - k jara sé ekki ráðningarslit. 11 Framangreind f ramkvæmd skipti máli fyrir félagsmenn stefnanda sem starfi hjá Vegagerðinni , þar sem þeir sjá i fram á, að öðru óbreyttu, að stofnunin geti sagt upp samningum um fasta yfirvinnu án tillits til heildaruppsagnarfrests. Í einhverjum til vikum gæti slíkt haft þa u áhrif að viðkomandi yrði ekki vært í starfi að liðnum skemmri uppsagnarfresti , til dæmis ef vinnuveitandi segði upp föstum yfirvinnu - tímum í heild sinni. 12 Stefnandi tekur fram að í kjarasamningi aðila sé sérstaklega samið um lengri uppsagnarfrest starfsma nna með tíu ára samfelldan starfsaldur hjá stofnun hafi þeir náð vissum aldri. Þegar starfsmaður eigi lengri uppsagnarfrest samkvæmt viðkomandi kjarasamningsákvæði, eða samkvæmt ákvæði í persónubundnum ráðningarsamningi, eigi sá frestur við um allar uppsag nir á ráðningarkjörum sem stafi einhliða frá vinnuveitanda. Ákvæðið sé ekki takmarkað við að uppsagnir leiði til ráðningarslita, heldur sé um að ræða almennan uppsagnarfrest. 13 Stefnandi telur að skýringar af hálfu stefnda við uppsögn fastra yfirvinnutíma st yðjist hvorki við lög né gerða kjarasamninga. Í fyrsta lagi feli einhliða ákvörðun vinnu - veitanda , um að lækka greiðslur til handa starfsmanni , tvímælalaust í sér uppsögn á fyrri samningi aðila, jafnvel þótt henni fylgi boð um breytt kjör í starfi. H vergi komi fram í kjarasamningi , að launagreiðanda sé heimilt að segja upp ákvæðum ráðningar - samninga um fasta yfirvinnu með skemmri uppsagnarfresti, jafnvel þótt tilgangur uppsagnarinnar sé ekki að slíta ráðningu. Fyrst heimild skorti til að segja viðkomandi 4 þætti ráðningarkjara upp með skemmri uppsagnarfresti verði stefndi að virða um - saminn uppsagnarfrest hvers og eins starfsmanns þegar ráðningarkjörum sé sagt upp. 14 Stefnandi vísar einnig til þess að fjallað sé um breytingar á ráðningarkjörum ríkis - starfsmann a í 19. gr. laga nr. 70/1996. Samkvæmt ákvæðinu sé starfs fólki skylt að hlíta breytingum á störfum og verksviði frá því þ að hafi tekið við starfi. Hafi breytingarnar í för með sér skert launakjör eða réttindi skuli það halda óbreyttum réttindum í jafnlanga n tíma og réttur þeirra til uppsagnarfrests vari samkvæmt ráðningarsamningi. Bendir stefnandi á að breytingin , sem gerð hafi verið á ráðningarsamningum félagsmanna hans hjá Vegagerðinni , hafi í för með sér launaskerðingu á bilinu 1% til 3% hjá hverjum og e inum. 15 Stefnandi kveður stefnda ekki geta sagt upp ráðningarkjörum að hluta með skemmri uppsagnarfresti en samið hafi verið um. Hver einhliða uppsögn umsaminna kjara feli í sér uppsögn á ráðningarsamningum í heild sinni og boð um nýjan, en breyttan, ráðnin garsamning. Framangreint leiði af dómaframkvæmd Hæstaréttar, sbr. meðal annars dóma Hæstaréttar frá 22. október 1987 í máli nr. 287/1986 og frá 10. nóvember 2011 í máli nr. ráðningarsamn ings [...] sem tilgreini r en annars gildi. 16 Önnur nálgun myndi að mati stefnanda leiða til þess að atvinnurekendur gætu skipt upp ráðningarsamningum starfsmanna í smærri þætti og viðauka, og sagt upp hlutum samni nga án þess að virða umsaminn uppagnarfrest í ráðningarsambandi. Stefnandi kveður þetta vera andstætt sjónarmiðum laga og kjarasamninga, og í andstöðu við dómaframkvæmd . 17 Stefnandi kveður sakarefnið falla undir valdsvið Félagsdóms með vísan til 3. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 . Þá uppfylli kröfugerðin áskilnað 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og d - liðar 1. mgr. 80. gr. sömu laga. Stefnandi hafnar því röksemdum stefnda fyrir því að vísa beri málinu frá dómi. Málsástæður og lagarök stefnda 18 Stefndi krefst aðallega frávísunar málsins. Hann reisir kröfuna í fyrsta lagi á því að sakarefni málsins falli utan lögsögu Félagsdóms. Málið lúti að ágreiningi um einstaklingsbundin réttindi og varði í raun einkaréttarlegar kröfur tiltekinna ríkis - starfsmanna en ekki skilning, gildi eða brot á kjarasamningi samningsaðila. Af þessu leiði að sakarefnið falli utan lögsögu Félagsdóms, sbr. 26. gr. laga nr. 94/1986. Í þessu sambandi vísar stefndi til þess að í ákvæði nu sé að finna tæmandi talningu á þei m sakarefnum sem geti átt undir Félagsdóm. Að sama skapi vísar stefndi til þess að túlka beri lögsögu Félagsdóms þröngt og hafi sú túlkun verið staðfest í dómaframkvæmd Félagsdóms og Hæstaréttar. 5 19 Stefndi kveðst vera ósammála stefnanda um að málið lúti að túlkun á grein 17.1 í kjarasamningi aðila. Telur hann að málið varði í raun ætlaða n rétt tiltekinna ríkis - starfsmanna til lengri uppsagnarfrests, meðal annars samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996 . Aðilar deili því um ætlaðan rétt til aukinna launagreiðslna ve gna breytinga á ráðningarkjörum, nánar tiltekið hvort frestur til slíkra breytinga skuli vera þrír mánuðir, líkt og stefndi byggi á eða hvort slíkur frestur skuli vera lengri á grundvelli greinar 17.1.1 í kjarasamningi aðila líkt og stefnandi byggi á. Að m ati stefnda þ urfi við úrlausn sakarefnisins að leggja mat á einstaklingsbundin atvik og einkaréttarlega samninga milli tiltekins eða tiltekinna starfsmanna annars vegar og Vegagerðarinnar hins vegar. Slíkt falli ekki undir lögsögu Félagsdóms heldur almennr a dómstóla. 20 Í öðru lagi kveðst stefndi byggja á því að kröfugerð stefnanda feli í sér lögspurningu og sé því andstæð 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Þegar atvik málsins séu skoðuð tel ji stefndi ljóst að kröfugerð stefnanda lúti ekki að því að fá skorið úr um ákveðin, einstaklingsbundin réttindi eða skyldu sem hafi raunhæfa þýðingu. Dómkrafan g angi því gegn ákvæði 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Kröfugerð stefnanda fel i í sér ósk um við urkenningu á því að tiltekin framkvæmd sé óheimil varðandi ótilgreinda félagsmenn stefnanda sem starf i hjá Vegagerðinni í stað þess að þess sé krafist að skorið verði úr um tiltekin réttindi eða skyldur sem leið i af slíkri framkvæmd. 21 Í þriðja lagi byggir stefndi á því að viðurkenningarkrafa stefnanda samrýmist ekki ákvæði 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, þar sem stefnandi h afi ekki lögvarða hagsmuni af dómkröfunni eins og hún sé sett fram. Stefnanda sé þannig ekki heimilt að setja fram kröfu um viðurkenni ngu í málinu enda ligg i fyrir að kröfurnar sker i ekki úr um tilvist eða efni tiltekinna réttinda eða réttarsambands af hálfu stefnanda eða tilgreindra félagsmanna hans. 22 Stefndi vísar einnig til þess að kröfugerð stefnanda sé að þessu leyti of almenn og ví ðtæk til að hann geti talist hafa lögvarða hagsmuni af henni. Að mati stefnda sé með dómkröfunni verið afla yfirlýsingar Félagsdóms um hvort háttsemi stefnda sé lögmæt án þess hún tengist ákveðnum og afmörkuðum hagsmunum stefnanda. Vísa r stefndi einnig til ákvæðis d - liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 69. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. M egi þetta einnig ráða af umfjöllun stefnanda á bl aðsíðu þrjú í stefnu málsins þar sem velt sé vöngum yfir mikilvægi dómsúrlausnar - innar í teng slum við önnur óskyld atvik en þau sem ligg i fyrir í málinu. Með því að stefnanda skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfunn ar ber i að fallast á frávísunarkröfu stefnda. 23 Í greinargerð stefnda er einnig gerð grein fyrir efnisrökum fyrir sýknukröfu stefn da, en ekki er efni til að rekja þær málsástæður í úrskurði þessum. Niðurstaða 24 Frávísunarkrafa stefnda er einungis hér til umfjöllunar. Sú krafa er annars vegar reist á því að sakarefnið eigi ekki undir Félagsdóm . Hins vegar byggist hún á því að 6 kröfugerð stefnanda í málinu feli í sér lögspurningu, hún sé of almenn og víðtæk og stefnandi hafi ekki lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr henni fyrir dómi. 25 Í málinu er krafist viðurkenning ar á því að stefnda sé óhei milt að gera b reytingar á ráðningarsamningum , er leiða til launaskerðingar félagsmanna stefnanda, með skemmri fresti en samnings bundnum uppsagnarfresti hvers og eins þeirra . Í röksemdum fyrir kröfugerðinni vísar stefnandi aðallega til greinar 17.1.1 í kja rasamningi , sem gildir milli aðila , en þar er kveðið á um lengdan uppsagnarfrest starfs fólks eftir tíu ára samfellt starf hjá sömu stofnun , að því tilskildu að þeir hafi náð tilteknum lágmarksaldri . Af málatilbúnaði stefnanda verður ráðið að hann telji len gdan upp sagnarfrest samkvæmt kjarasamningsákvæðinu gilda um breytingar á ráðningar kjörum er leiða til launaskerðinga. Því er stefndi ósammála og hefur við breytingu á ákvæðum ráðningarsamninga um fasta yfirvinnu félagsmanna stefnanda er starfa hjá Vegagerðinni , sem ráðist var í snemma á þessu ár i , ekki tekið mið af framangreindu kjarasamningsákvæði, heldur lagt til grundvallar að uppsagnarfrestur sé þrír mánuðir. Um það vísar stefndi til þess að lengri uppsagnarfrestur með hækkandi lífaldri byggi á því sjónarmiði , að þegar stutt er í starfslok geti starfsfólk átt erfiðara með að finna aðra vinnu við hæfi. Við þær breytingar sem gerðar voru hjá Vegagerðinni hafi engum verið sagt upp starfi, heldur hafi tilteknum ráðningarkjörum aðeins verið sagt upp. Hafi sú breyting haft óveruleg áhrif á launakjör og verði slík ráðstöfun ekki jafnað til uppsagnar er leiði til starfsloka. 26 Samkvæmt framansögðu er uppi ágreiningur milli stefnanda og stefnda um hvort grein 17.1.1 í kjarasamning num eigi við um breytingu rá ðningarsamninga sem fela í sér skerðingu launakjara á borð við þá sem átt hafa sér stað hjá félagsmönnum stefnanda sem starfa hjá Vegagerðinni. Í 3. tölulið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 segir að Félagsdómur dæmi í málum sem rísa milli samningsaðila um ágreining um skilning á kjarasamningi eða gildi hans. F ramangreindur ágreiningur málsaðila um gildissvið greinar 17.1.1 í kjarasamningi aðila heyrir undir ákvæðið og því fellur sakarefni málsins að þessu leyti undir dómsvald Félagsdóms. 27 Í stefnu er því einnig borið við að lengdur uppsagnarfrestur félagsmanna stefnanda sem starfa hjá Vegagerðinni geti byggst á öðrum grundvelli en kjarasamningi , en ætla verður að þar sé vísað til einstak r a ráðningarsamninga. Í 26. gr. laga nr. 94/1986 er lýst með tæmandi h ætti þeim ágreiningi sem Félagdómur dæmir um. Samkvæmt ákvæðinu heyrir ágreiningur um túlkun og gildi ákvæða í ráðningarsamningum ekki undir dómsvald Félagsdóms . Því sker Félags d ómur ekki úr því hvort einstaka ráðningarsamningar félagsmanna stefnanda stand i í vegi fyrir því að stefndi geri breyting ar á ráðningarkjörum þeirra með þriggja mánaða uppsagnarfresti. 28 Kröfugerð stefnanda er sett fram sem almenn krafa um viðurkenningu á því að tilgreind háttsemi stefnda gagnvart félagsmönnum stefnanda , sem starfa hj á Vegagerðinni , sé óheimil. Krafan er ekki tengd ákveðnum lögskipt u m , þar sem deilt er um hvort grein 17.1.1 í kjarasamningi aðila eigi við . Eftir sem áður er í stefnu 7 málsins gerð grein fyrir tilteknum ágreiningi þar sem niðurstaða veltur á því atriði. Verður ekki betur séð en að k röfugerðin sé til þess fallin að leysa úr þeim ágreiningi , þótt hún sé sett fram með þessum hætti . Stefnandi er stéttarfélag tiltekins hóps starfsmanna hjá Vegagerð inni , sem eiga lögvarða hagsmuni af því að dómur gangi um kröfu na . Rekur stefnandi málið fyrir þeirra hönd , sbr. 4. mgr. 27. gr. laga nr. 94/1986. 29 Í framkvæmd hefur tíðkast að stéttarfélög setji fram kröfu fyrir Félagsdóm i, þar sem deilt er um skilning eða gildi ákvæða kjarasamning s , sem viðurkenningarkröfu um tiltekna afstöðu st éttarfélagsins í því efni , án þess að kröfugerðin sé tengd einstökum lögskiptum félagsmanna þess . Úr nýlegri dómaframkvæmd má í þessu sambandi meðal annars benda á dóm a Félagsdóms frá 31. mars 2026 í málum nr. 8 /2025 , 9 /2025 og 10/2025, dóm Félagsdóms 30. mars 202 6 í máli nr. 7/2025, dóm Félagsdóms 6. júní 2023 í máli nr. 7/2023 og dóm Félagsdóms 23. nóvember 2022 í máli nr. 3/2022 . Í síðastefnda málinu var krafist viðurkenningar á því að þar til greind háttsemi vinnuveitanda væri óheimil á grundvelli kjarasamnings aðila málsins. Með úrskurði dómsins 27. júní 2022 var frávísunarkröfu stefnda í málinu hafnað, enda talið að ágreiningurinn heyrði undir dóminn , að krafan væri nægilega skýr og til þess fallin að leiða ágreining aðil a til lykta , þótt ekki væri þar vísað til afmarkaðs tilviks. Meðal annars með hliðsjón af hlutverki Félagsdóms var heldur ekki talið að vísa bæri máli nu frá á þeim grunni að um lögspurningu væri að ræða í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 , auk þes s sem tekið var fram að niðurstaða málsins hefði þýðingu fyrir réttarstöðu félagsmanna stefnanda. 30 Sama á við í þ ví máli sem hér er til úrlausnar. Með hliðsjón af framangreindu og a ð teknu tilliti til hlutverk s Félagsdóms fer kröfugerðin því hvorki gegn 1. né 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, auk þess sem lýsing á kröfu í stefnu málsins fullnægir áskilnaði d - liðar 1. mgr. 80. gr. sömu laga. 31 Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið er það niðurstaða dómsins að ekki sé efni til þess að taka frávísunarkröfu stefnda til greina og verður henni því hafnað. Rétt þykir að ákvörðun málskostnaðar vegna þess þáttar málsins bíði efnislegrar niðurstöðu málsins. Úrskurðar orð: Frávísunarkröfu stefnda, íslenska ríkisins, e r hafnað. Ákvörðun málskostnaðar bíður efnisleg r ar niðurstöðu málsins. Ásmundur Helgason Björn L. Bergsson Hólmfríður Grímsdóttir 8 Jón Sigurðsson Inga Björg Hjaltadóttir